Fjármálaráð segir að „lausung“ í ríkisfjármálum valdi framúrkeyrslu
![Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnti nýlega fjármálaáætlun fyrir árin 2024 til 2028.](https://www.visir.is/i/F0B3D9CE9AA2A8F6818798C706E2FB0001A1D9145D091081C5901CBA335D199A_713x0.jpg)
Lausung í fjármálastjórn ríkisins, sem endurspeglast í því að ófyrirséður tekjuauki ríkissjóðs hefur verið nýttur til aukinna útgjalda, er ein helsta ástæðan fyrir því að fyrri fjármálaáætlanir hafa ekki gengið eftir. Fjármálastefna sem gengur út á að safna skuldum bæði „í hæðum og lægðum skerðir trúverðugleika,“ að mati fjármálaráðs.