Lífið

Pétur Jóhann nú fyndnasti afi landsins

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Pétur Jóhann varð afi á dögunum þegar lítið stúlkubarn kom í heiminn.
Pétur Jóhann varð afi á dögunum þegar lítið stúlkubarn kom í heiminn. Vísir/Vilhelm

Fjölmiðlamaðurinn og grínistinn Pétur Jóhann Sigfússon varð afi á dögunum þegar lítið stúlkubarn kom í heiminn miðvikudag fyrir páska.

„Það er bara geggjað,“ segir Pétur í samtali við Vísi, spurður hvernig sé að vera nýbakaður afi. Hann ræddi nýja hlutverkið í hlaðvarpsþættinum Beint í bílinn sem þeir Sverrir Þór Sverrisson, Sveppi, halda úti.

„Veistu hvað er aðal málið sem gerir þetta hlaðvarp að tímamótahlaðvarpi og erum að brjóta blað í sögu þessa hlaðvarps,“ sagði Pétur við Sveppa.

 „Ég varð afi!“

Lítil afa-skvís

„Við urðum amma og afi á miðvikudeginum fyrir páska. Klukkan 13:00 kom lítil ömmu og afa-skvís,“ segir Pétur og heldur áfram: „Rosa mikið hár, vær og góð.“

Pétur Jóhann var árið 1999 valinn fyndnasti maður Íslands. Um það leyti urðu kaflaskil í lífi hans þar sem hann yfirgaf Byko, þáverandi vinnustað hans, og fór að sjá fyrir sér í skemmtanabransanum. Hann er vinsæll veislustjóri og skemmtir reglulega með uppistandi.

Hann segist ekki lengur vera fyndnasti maður landsins. Nei, nú sé hann fyndnasti afi landsins.

Pétur Jóhann er giftur Sigrúnu Halldórsdóttur en þau létu pússa sig saman síðastliðið haust. Saman eiga þau einn dreng en fyrir eiga þau bæði dætur úr fyrri samböndum. 

Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni hér að neðan.


Tengdar fréttir

Pétur Jóhann og Sigrún giftu sig

Leikarinn Pétur Jóhann Sigfússon og Sigrún Halldórsdóttir giftu sig um helgina við litla athöfn. Grínistinn greindi frá því í Blökastinu fyrir nokkrum vikum að til stæði að hafa brúðkaupið lítið við dræmar undirtektir frá þáttastjórnendum. Parið kynntist árið 2007 eftir að hún sendi honum skilaboð á Myspace.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×