Veður

Hlýtt og rakt loft yfir landinu næstu daga

Atli Ísleifsson skrifar
Almennt má reikna með fimm til fimmtán metrum á sekúndu í dag og hita á bilinu sex til fjórtán stig.
Almennt má reikna með fimm til fimmtán metrum á sekúndu í dag og hita á bilinu sex til fjórtán stig. Vísir/Vilhelm

Suðlægar áttir verða ríkjandi á landinu á næstu dögum með rigningu eða súld og jafnvel þokulofti, enda hlýtt og rakt loft yfir landinu af suðrænum uppruna.

Á vef Veðurstofunnar segir að það verði þó ekki teljandi úrkoma á norðaustanverðu landinu og allar líkur á að sólin láti sjá sig þar nokkuð reglulega í vikunni.

Almennt má reikna með fimm til fimmtán metrum á sekúndu í dag og hita á bilinu sex til fjórtán stig.

„Eftir sumardaginn fyrsta virðist ætla að koma smá bakslag hjá okkur þar sem kalt heimskautloft ætlar að öllum líkindum að ná til okkar. Eins og þetta lítur út núna er um skammvinna norðanátt að ræða og ekki mikil úrkoma sem henni fylgir enda á að myndast hæð yfir landinu næstu helgi. Hins vegar má reikna með að hann frysti fyrir norðan og austan,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag. Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag: Suðaustan 5-15 m/s, hvassast vestanlands, en hægari eftir hádegi. Rigning eða súld suðaustanlands. Þurrt að kalla vestan- og norðanlands fyrir hádegi og víða bjart norðan heiða um morguninn, en þykknar upp og væta með köflum eftir hádegi. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast norðanlands.

Á miðvikudag: Suðlæg átt 3-10 og súld eða dálítil rigning með köflum, en bjartviðri norðaustanlands. Hiti breytist lítið.

Á fimmtudag (sumardagurinn fyrsti): Hæg suðlæg átt, skýjað með köflum og stöku skúrir, en bjartviðri á Norður- og Austurlandi. Áfram hlýtt í veðri.

Á föstudag: Snýst í norðlæga átt og kólnar á norðanverðu landinu með dálítilli rigningu, og síðar slyddu eða snjókomu. Dálítil væta suðvestanlands, en bjart suðaustanlands og áfram milt.

Á laugardag: Norðlæg átt, stöku él norðaustantil og syðst á landinu, en annars léttskýjað. Kalt í veðri.

Á sunnudag: Hægviðri og víða bjart veður. Hiti breytist lítið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×