Helvítis kokkurinn er sýndur á miðvikudögum á Vísi og Stöð 2+. Fyrsta þáttinn í annarri þáttaröð má sjá í spilaranum hér að neðan.
Babyback rif með Bola-BBQ sósu
Uppskrift fyrir 6 manns
- 4 stk babyback rif
Marinering fyrir rif:
- 2 msk dijon
- 2 msk Helvítis Eldpiparsultan: Habanero og Appelsína
- 1 msk worchestershire
- 1 msk sojasósa
Kryddblanda á rif:
- 1 ½ msk reykt paprika
- 2 msk paprika
- ½ msk chilli pipar
- ½ msk salt
- ¼ msk timjan
- ½ msk svartur pipar
- ½ msk hvítlauksduft
- ½ msk laukduft
- ¼ msk cayenne pipar
- Börkur af heilu lime
Aðferð:
Blandið saman djion, worchester, soya og Helvítis Eldpiparsultunni saman og berið á rifin. Búið til kryddböndu samkvæmt uppskrift og kryddið rifin vel á báðum hliðum. Pakkið hverju rifi fyrir sig í sellófanplast og álpappír. Hitið ofninn í 120° og bakið rifin á ofnplötu í 100 mínútur.
Takið rif úr ofni og fjarlægið allar umbúðir varlega, vegna þess að þetta er svo helvíti heitt. Látið rifin kólna á meðan þú klárar undirbúning á öðru.
Grillið rif á grilli og penslið Bola BBQ sósunni á, eða penslið sósunni á og setjið í 220° heitan ofn í 15 mínútur.
Hrásalat:
- 200 gr hvítkál
- 100 gr rauðkal
- 4 stk radísur
- 1 heil gulrót
- 50 gr fennel
- ½ grænt epli
- 2 msk mayo
- Salt
- Pipar
- 1 msk eplaedik
- Safi úr hálfri appelsínu
- 1 msk Helvítis Eldpiparsultan: Grænn Jalapeno og Límóna
4 stk forsoðinn maís skorinn í tvennt:
- 150 gr smjör
- Salt
- Pipar
- Kóríander
Aðferð:
Grillið maís á pönnu með smjörinu þangað til hann er orðinn gullbrúnn og tilbúinn, saltið og piprið. Saxið kóríander niður og dreifið yfir áður en þið njótið.
Boli BBQ:
- 12 flöskur Boli
- 1 heill laukur
- 1 grænt epli
- 4 hvítlauksrif
- 1 msk olía
- 1 msk paprika
- 1 msk hvítlauksduft
- 2 msk sojasósa
- 4 msk worchestershire
- 2 msk teriyaki
- 2 msk dijon
- 1 dós ananas í bitum
- 50 gr tómatpurré
- 1 rauður chilli
- 1 habanero
- 1 msk shriracha
- 1 dós tómatmauk
- 2 msk eplaedik
- 1 lime kreist
- 400 gr púðursykur
- Salt
- Pipar
Aðferð:
Sjóðið allan bjórinn niður í potti í um 75-80% eða þannig að eftir sitji um það bil 800 ml af vökva. Munið að skumma froðuna ofan af vökvanum á meðan suðu stendur. Saxið lauk, hvítlauk og epli smátt niður og hitið í olíu á pönnu. Setjið rest af hráefnum út í pottinn og sjóðið í 10 mínútur. Blandið bjórnum útí og sjóðið blönduna í 30-40 mínútur. Rennið töfrasprotanum í gegnum blönduna og slökkvið undir. Smakkið til með salti og pipar.