Lífið

Aron Can birti fyrstu feðgamyndina

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Aron Can á Hlustendaverðlaununum í fyrra.
Aron Can á Hlustendaverðlaununum í fyrra. Hulda Margrét Óladóttir

Tónlistarmaðurinn Aron Can birti fyrstu myndina af sér og frumburðinum á samfélagsmiðlum.

Aron og kærastan hans, Erna María Björnsdóttir, eignuðust dreng 3. apríl síðastliðinn.

Óhætt er að segja að Aron hafi verið spenntur fyrir föðurhlutverkinu þar sem hann birti stærðarinnar sónarmynd á breiðtjaldi á afmælistónleikum sínum í Hörpu í nóvember í fyrra, ásamt því að birta reglulega óléttumyndir af Ernu á Instagram.

Aron birtir fallega feðgamynd í story á Instagram í gær.Instagram

Aron hefur verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins og var hann valinn söngvari ársins 2022 á Hlustendaverðlaununum

Saman rekur parið veitingastaðinn Stund sem staðsett er í Veru mathöll í Grósku í Vatnsmýri. Þau reka staðinn með parinu Aroni Már Ólafssyni leikara, betur þekktur sem Aron Mola, og unnustu hans, Hildi Skúladóttur.


Tengdar fréttir

Aron Can og Erna María eiga von á barni

Söngvarinn Aron Can Gultekin á von á barni ásamt kærustu sinni til nokkurra ára, flugfreyjunni Ernu Maríu Björnsdóttur. „Lítill Can,“ skrifaði parið undir fallega mynd af bumbunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.