Veður

Allt að þrettán stiga hiti

Bjarki Sigurðsson skrifar
Gera má ráð fyrir allt að þrettán gráðu hita á sunnanverðu landinu í dag.
Gera má ráð fyrir allt að þrettán gráðu hita á sunnanverðu landinu í dag. Vísir/Vilhelm

Hiti gæti náð allt að þrettán stigum í dag. Það er annað uppi á teningnum hjá íbúum á Norðurlandi en þar verður hiti í kringum frostmark í dag. Vindur verður norðan- og norðaustanátt fimm til þrettán metrar á sekúndu. 

Búast má við lítilsháttar éli á Norðurlandi og stöku skúrum fyrir sunnan þrátt fyrir mun mildara veður.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag:

Norðaustlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og skýjað með köflum, en stöku skúrir suðvestantil. Bjartviðri um landið norðvestanvert. Hiti 1 til 7 stig yfir daginn, en í kringum frostmark norðaustanlands.

Á sunnudag:

Hæg breytileg átt og víða bjartviðri, en dálitlar skúrir eða slydduél sunnantil á landinu. Hiti breytist lítið.

Á mánudag:

Norðaustlæg eða breytileg átt 3-10 og dálitlar skúrir eða él, en yfirleitt þurrt norðan- og austantil. Hiti áfram svipaður.

Á þriðjudag og miðvikudag:

Norðaustan- og austanátt og dálítil él, en lengst af þurrt á Norður- og Austurlandi. Hiti 0 til 5 stig yfir daginn, en vægt frost um landið norðaustanvert.

Á fimmtudag:

Norðaustlæg átt og stöku él, en þurrt á Vesturlandi. Áfram svalt í veðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×