Lífið

Hug­ljúfur flutningur Lay Low og Ey­þórs á laginu Þannig týnist tíminn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Eyþór Ingi og Lay Low fóru mikinn í þættinum á föstudagskvöldið.
Eyþór Ingi og Lay Low fóru mikinn í þættinum á föstudagskvöldið.

Á föstudagskvöldið var þátturinn Kvöldstund með Eyþóri Inga á dagskrá Stöðvar 2 en gestur þáttarins að þessu sinni var tónlistarkonan Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir betur þekkt sem Lay Low.

Eitt af hennar þekktari lögum er lagið Þannig týnist tíminn eftir Bjartmar Gunnlaugsson.

Ragnar Bjarnason gerði lagið ódauðlegt á sínum tíma en Lay Low endurvakti það sannarlega fyrir ekki svo löngu.

Eyþór og Lay Low flutti lagið fallega saman eins og sjá má hér að neðan.

Klippa: Eyþór Ingi og Lay Low: Þannig týnist tíminn





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.