Lífið

Ari Eldjárn og Tinna í Hrím nýtt par

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Ari og Tinna hafa verið að stinga saman nefjum í nokkurn tíma.
Ari og Tinna hafa verið að stinga saman nefjum í nokkurn tíma. Samsett

Uppistandarinn Ari Eldjárn og Tinna Brá Baldvinsdóttir framkvæmdastjóri og eigandi verslunarinnar Hrím eru nýtt par. 

Ari og Tinna hafa verið að stinga saman nefjum í nokkurn tíma og má með sanni segja að þau séu eitt glæsilegasta par landsins. Reikna má með því að glatt sé á hjalla hjá parinu en þau hafa meðal annars sést skella upp úr saman á uppistandi Jakobs Birgissonar.

Ari hefur getið gott orð af sér sem uppistandari frá árinu 2009. Framan af kom hann fram með uppistandshópnum Mið-Íslandi en fjölmörg brot úr samnefndu sjónarpsþáttum hópsins má einmitt finna á Vísi.

Undanfarin ár hefur Áramótskop Ara orðið að föstum lið hjá mörgum Íslendingnum í kringum áramótin. Grínistinn hefur selt upp hvert Háskólabíóið á fætur öðru undanfarin ár. Auk þess hefur Ari verið á heljarinnar flakki úti í heim með uppistand sitt og er reglulegur gestur á árshátíðum og veislum.

Þá hefur sýningin Pardon my Icelandic verið aðgengileg Netflix-notendum í 190 löndum.

Tinna hefur verið í fyrirtækja- og verslunarrekstri síðastliðin tíu ár og er með BA gráðu í arkitektúr. Tinna greindi frá því hvað hún kynni að meta í fari karlmanna í liðnum Bónorðin á Vísi fyrir tveimur árum. Þar bar tónlist meðal annars á góma. Ari er einmitt trommari svo þar er strax komið áhugamál sem parið deilir.

Bæði eiga þau tvö börn úr fyrri samböndum.


Tengdar fréttir

Ari Eldjárn einhleypur

Uppistandarinn Ari Eldjárn er orðinn einhleypur. Ari og kona hans Linda Guðrún Karlsdóttir hafa ákveðið að halda í sitthvora áttina eftir tuttugu ára samband.

„Mikil áskorun að læra að vera ein eftir nítján ára sambúð“

„Nýja árið er bara virkilega spennandi. Það er búið að vera mikil áskorun að læra að vera ein eftir nítján ár í sambúð en nýtt ár og ný tækifæri er klisja sem ég er bara spennt að nota óspart þessa dagana,“ segir Tinna Brá Baldvinsdóttir framkvæmdastjóri og eigandi verlslunarinnar Hrím í viðtali við Makamál.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.