Veður

Norð­læg átt í dag og hvessir í nótt

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti verður á bilinu núll til sex stig að deginum.
Hiti verður á bilinu núll til sex stig að deginum. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan gerir ráð fyrir norðlægri átt í dag þar sem víða verða þrír til tíu metrar á sekúndu. Það verður skýjað og dálítil snjókoma suðvestanlands en léttir til eftir hádegi. Stöku él norðaustantil en annars bjart að mestu.

Á vef Veðurstofunnar segir að það verði hiti núll til sex stig að deginum þar sem verður svalast norðaustantil og á Vestfjörðum.

„Hvessir aðeins í nótt, norðlæg átt 5-13 m/s á morgun, en 10-15 m/s austast á landinu. Bjart veður um allt land en líkur á smáskúrum á Suðausturlandi eftir hádegi. Hiti breytist lítið.

Svipað veður verður á sunnudag en þykknar upp norðaustanlands eftir hádegi með dálitlum éljum um kvöldið. Hiti 2 til 6 stig en nálægt frostmarki á norðanverðu landinu,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag: Norðlæg átt 5-13 m/s og bjartviðri, en austlægari sunnanlands, skýjað og dálítil væta. Frost 0 til 5 stig, en hiti rétt yfir frostmarki að deginum sunnantil.

Á sunnudag: Norðlæg átt, víða 8-13 og bjartviðri, en þykknar upp með dálítilli snjókomu á norðanverðu landinu um kvöldið. Hiti breytist lítið.

Á mánudag: Norðlæg átt 3-10 en 8-13 austast. Lítilsháttar él á Norður- og Austurlandi og vægt frost, en þurrt sunnan heiða með hita að 5 stigum yfir daginn.

Á þriðjudag: Fremur hæg breytileg átt og yfirleitt bjart en sums staðar skýjað við suður- og austurströndina. Hiti 2 til 7 stig en um frostmark norðaustanlands.

Á miðvikudag: Hæg breytileg átt og skýjað að mestu en bjart norðaustantil. Suðaustanátt með dálítilli rigningu suðvestast á landinu um kvöldið. Hiti 0 til 6 stig, svalast á Austfjörðum.

Á fimmtudag: Útlit fyrir suðaustanátt með rigningu um vestanvert landið en hægari og þurrt fyrir austan. Hiti 3 til 8 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×