Lífið

Mesti aðdáandi Backstreet Boys á landinu og biður fólk sem verður nálægt sér í kvöld afsökunar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Eva Ruza fær líklega að hitta sveitina í kvöld og hefur lítið sofið í vikunni út af því.
Eva Ruza fær líklega að hitta sveitina í kvöld og hefur lítið sofið í vikunni út af því.

Strákabandið Backstreet Boys stendur fyrir stórtónleikum í Nýju Laugardalshöllinni í kvöld.

Mesti aðdáandi sveitarinnar hér á landi er líklega skemmtikrafturinn Eva Ruza en það kom sannarlega í ljós í Íslandi í dag á Stöð 2 í gær.

Þórdís Valsdóttir hitti þær systurnar Evu Ruzu Miljević og Tinna Miljević í höllinni og fóru þær vel yfir ást sína á sveitinni.

Eva Ruza fór til að mynda á tónleika með sveitinni í október og gjörsamlega missti vitið þar. Hún biður fólk sem verður nálægt sér á tónleikunum í kvöld afsökunar.

Eva hefur æft dansspor fyrir veisluna í kvöld og fer hún vel og vandlega yfir það í innslaginu hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.