Lífið

Bað Ása um að leysa sig af og kenna rassatíma

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Af svipnum að dæma virðist Ási ekki spenntur fyrir því að kenna Buttlift.
Af svipnum að dæma virðist Ási ekki spenntur fyrir því að kenna Buttlift.

Sara Davíðsdóttir, flugfreyja og einkaþjálfari, hefur farið á kostum á samfélagsmiðlinum TikTok undanfarið með óvanalegum beiðnum til unnustans og hlaðvarpsstjórnandans Ásgríms Geirs Logasonar, betur þekktur sem Ási.

Í einu myndskeiðinu biður hún Ása um að kenna Buttlift tíma fyrir sig.

„Ég er í algjöru veseni og veit ekki alveg hvað ég á að gera, en ég er að fara að kenna Buttlift í hádeginu á morgun 11:50 í 45 mínútur og hittir akkúrat á að ég er að hitta gæjann með heimasíðuna 12:15 á morgun og get ekki bakkað út núna, og það getur enginn leyst mig af,“ segir Sara.

„Ég var að pæla hvort þú gætir bara gert þetta?“

Sara sagði að það eina sem Ási þyrfti að gera væri að mæta og vera hress:

„Ég verð búin að búa til tímann og skrifa hann upp fyrir þig og þú átt bara að mæta og sýna æfingarnar, vera hress og skemmtilegur, bara peppa,“ segir Sara hvetjandi og kveðst ætla að greiða honum fyrir aðstoðina.

Af svipnum að dæma átti Ási ekki von á þessari spurningu, virðist lítið spenntur fyrir því að hlaupa í skarðið.

„Ha! Kennt tímann? Ertu ekki að grínast eða“? spyr Ási kostulegur á svip og segist aldrei hafa kennt leikfimi yfir höfuð: „Er þetta ekki einhver stelputími, einhver rassatími?,“ spyr hann.

Myndbandið má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir

Bar bón­orðið upp á sjúkra­hús­bedda

Listakonurnar og kærustuparið Íris Tanja Flyernring og Elín Eyþórsdóttir eru nýjustu viðmælendur Ása í hlaðvarpsþættinum hans, Betri helmingurinn. Þar ræða þær um skemmtilegar staðreyndir úr sinni sambandstíð. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.