Lífið

Maí­spá Siggu Kling: Ævin­týri verða að fá að gerast hjá nautinu

Sigga Kling skrifar

Elsku Nautið mitt, þótt að hjartað slái örar og að taugatitringur sé í kringum þig, þá er það einungis út af öðru fólki og ekki sjálfu þér. Þú ert að fara inn í svo ástríðufullt tímabil þar sem Sporðdrekatunglið er 5. maí og fyrir svona andlega týpu eins og þig ættir þú aðeins að staldra við á þeim tíma og að skoða hvernig þú vilt hafa þitt landslag í kringum þig.

  • Nautið er frá 20. apríl til 20. maí.

Hvort þú viljir ekki í hjarta þínu fá ástina, ef þú ert á lausu, og lítur á björtu hliðarnar, þá skaltu leyfa þeim ævintýrum sem leita á þig að gerast. Ekki snúa upp á þig og hörfa inn í hellinn þinn, heldur skaltu leyfa öllu þínu bjarta „sex-appeali“ njóta sín, því að ástin er alls staðar.

Það getur líka verið hindrun að þú nennir ekkert að fara í eitthvað samband, því eins og þú ert duglegt þá hefurðu ekki mikla nennu fyrir breytingum. En þú ert á þessum spennandi kafla í lífsbókinni, þar sem vinnan þín eða heimili þitt koma þér á óvart. En með þessari gleði sem þú hefur í þinni sál þá skaltu taka á móti því sem þér býðst. Í þessu mikla flæði verður einnig töluvert af sambandsslitum.

Ef þú finnur í hjarta þínu að þér sé bara létt, af því þú hefur haldið í einhvern til að hafa einhvern, þá er þetta tímabil þannig að yfir þig mun rigna demöntum. Það mun hreyfa við orkunni þinni og lífi, hvort sem þér líkar það eða ekki. Þú tapar engu af því sem þú þarft að hafa til þess að byggja þig upp, svo ekki kvíða neinu, það er vel hugsað um þig af englunum sem í kringum þig eru.

Fyrir eða í kringum 29. maí, sem er tunglmyrkvi og blóðmáni, hreyfist veröldin þér í hag á örskammri stundu og lagar aðalatriðin til þess að koma öllu í fastari skorður, því að þú elskan mín þrífst á öryggi og geislandi umhyggjusemi.

Knús og kossar, Sigga Kling

  • Elizabeth Alexandra Mary, fyrrum drottning Bretlands, 21. apríl
  • Halldór Kiljan Laxness, rithöfundur og ljóðskáld, 23. apríl
  • Gigi Hadid, fyrirsæta, 23. apríl
  • William Shakespeare, leikari, 26. apríl
  • Melissa Viviane Jefferson (Lizzo), söngkona, 27. apríl
  • Garðar Thór Cortes, óperusöngvari, 2. maí
  • Eliza Jean Reid, fyrrum forsetafrú Íslands, 5. maí
  • Katrín Tanja Davíðsdóttir, crossfit stjarna, 10. maí
  • Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrum forseti Íslands, 14. maí





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.