Lífið

Maí­spá Siggu Kling: Meyjan fer inn í merki­legt tíma­bil

Sigga Kling skrifar

Elsku Meyjan mín, þú ert að fara inn í mikið og merkilegt tímabil sem gefur þér afl í tilfinningum og kraft til að segja hvað þú vilt. Og þú færð sterka stefnu, því að það sem er mikilvægast er náttúrulega að vita hvert maður er að fara og hvert maður vill fara, þá er komin sterk stefna í því hvernig leiðin verður.

  • Meyjan er frá 23. ágúst til 22. september.

Þú sérð svo margt í svo nýju ljósi og í betri litum. Þú sérð og finnur af hverju þetta er svona og af hverju þetta var svona, það er eins og að þú verðir að skilningstré. Það sem hefur pirrað þig í vinnu eða skóla eða hverju svo sem þú ert að gera, þá skilurðu hvernig þú átt að breyta því og þú opnar aðrar dyr og færð nýja lausn.

Það er eins og þú gleymir því fólki sem hefur pirrað þig hingað til, eða af einhverri ástæðu sparkað í þig, og þú finnir bara frið gagnvart þeim persónum og það er í raun eina leiðin til að losa sig undan áhyggjum og gremju.

Það er líka lagt fyrir þig í þessu tímabili að þú sjáir að þú þarft að gera það sem þú vilt láta framkvæma sjálf, eða að vera með á hreinu að það sé gert. Þarna kemur líka til þín að þú verður svo sterk í að taka ábyrgð og að vita að hlutirnir eru þér að þakka, eða þér að kenna, og engum öðrum.

Þar sem þú vilt hafa ástina eða hjá þeim sem þú vilt hafa ástina, þá gengur það upp. Ef að eitthvað klikkar þá er það bara af því að þú varst ekki með ástina þar, heldur þráhyggju. Þú skalt skoða vel dagana 11., 12. og 19. maí, það er sérstök orka sem fylgir þessum dögum. Þú skalt vita að þú munt uppskera ríkulega að lokum og hafa rétt fyrir þér í svo mörgu.

Knús og kossar, Sigga Kling

  • Manuela Ósk Harðardóttir, fyrrverandi fegurðardrottning, 29. ágúst
  • Cameron Diaz, leikkona, 30. ágúst
  • Árni Páll Árnason (Herra Hnetusmjör), rappari, 31. ágúst
  • Keanu Reeves, leikari, 2. september
  • Beyoncé Giselle Knowles-Carter, söngkona, 4. september
  • Beyoncé Knowles, söngkona, 4. september
  • Ari Eldjárn, grínisti, 5.september
  • Ómar Ragnarsson, fjölmiðlamaður, 16. september
  • Annie Mist Þórisdóttir, crossfit stjarna, 18. september





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.