Lífið

Maí­spá Siggu Kling: Bog­maðurinn sveiflast frá góð­semi til stjórn­semi

Sigga Kling skrifar

Elsku Bogmaðurinn minn, það er í mörg horn að líta hjá þér. Þér finnst eins og þú sért ekki búinn að klára það sem þú varst búinn að lofa sjálfum þér eða öðrum að ganga frá. Allt er samt á réttum tíma, því að það eru ástæður fyrir öllu sem gerist hjá þér.

  • Bogmaðurinn er frá 22. nóvember til 21. desember.

Þú hefur töluna fjóra ríkjandi þennan mánuð og táknar hún uppgjör gagnvart ýmsu sem getur snert hjartað og táknar hún líka mikla þrjósku og kraft til að fá það sem andinn þinn vill. Og þegar þú ætlar þér hlutinn þá skaltu nýta þér og njóta þess að fá hjálp, ráð eða hugmyndir um hvernig þú ferð að því sem þú stefnir að fá frá þínum bestu manneskjum.

Þú sveiflast töluvert frá góðsemi til stjórnsemi, en þú þarft að vita að hlutirnir bjargast miklu fyrr og af meiri fegurð ef þú sleppir einhverjum spottum. Þetta maraþon sem þú ert búinn að skrá þig í gefur þér hindranir þegar þú ert í erfiðum kafla, en útkoman er að þú sigrar þetta maraþon hlaup. Svo njóttu þess að byggja það upp sem þú ert að gera, því að þessi uppbygging skilar þér því að þú býrð á endanum í höll.

Þann 13. maí hefur þú útkomuna fjóra og þá eru breytingar vísar hvort sem þér verður sagt eitthvað eða þú færð að vita hvernig hlutirnir standa. Svo gefur 22. maí þér fegurð, viðsnúning og einskæran sigur til þess að ljúka því sem þú þarft að gera með gleði og sigurvissu um að þú hafir gert hlutina betur en þú bjóst við. Og þá finnurðu þetta stolt sem tengir þig við hið fallega lífsafl sem þér er í blóð borið.

Mundu að fagna þeim afrekum sem þér finnast skipta máli, því að orkan breytist og tíðnin í kringum mann í hvert skipti sem maður fagnar þeim gjöfum og þeim áföngum sem lífið skreytir þig.

Knús og kossar, Sigga Kling

Frægt fólk í Bogmanninum.

  • Ingvar E. Sigurðsson, leikari, 22. nóvember
  • Brendan Fraser, leikari, 3. desember
  • Nicki Minaj, rappari, 8. desember
  • Steinþór Hróar Steinþórsson (Steindi), grínisti, 9. desember
  • Taylor Swift, söngkona, 13. desember
  • Edda Falak, hlaðvarpsstjórnandi, 14. desember
  • Brad Pitt, leikari, 18. desember





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.