Upplifðu Reykjavíkurborg á nýjan hátt í viðburði Arkitektafélags Íslands með örlítið örari hjartslátt en vanalega. Arkitektafélag Íslands býður nú í annað sinn upp á hlaupaviðburð á HönnunarMars. Arkitektar munu leiða þig um fjölbreytt og margslungið umhverfi borgarinnar á hlaupum.

Vegna sýningar ÞYKJÓ í Stúdíó Gerðar á HönnunarMars verður sérstök fjölskylduvæn opnun með smiðju í Gerðarsafni. Augaleið er skapandi listsmiðja fyrir börn frá 4 ára aldri í fylgd með fullorðnum á vegum ÞYKJÓ hönnunarteymisins í Gerðarsafni. Smiðjan opnar augun fyrir því hvernig við sjáum veröldina og gerir okkur kleift að prófa að skoða okkur um með nýjum augum.

Fataleigan SPJARA nýtir innsýn úr neyslusálfræði og upplifunarhönnun í þátttökuviðburðinn sinn SPJARA þerapía, sem er eins konar andsvar SPJARA við retail therapy. SPJARA þerapía er þerapísk upplifun sem miðar að því að skapa samskonar sálfræðilegt ástand og fólk sækir í að upplifa með því að kaupa og nota nýjar tískuvörur.

Sýningin Handverk veitir áhorfendum innsýn í sköpunarferli hönnuða og sýnir rannsóknina, hugmyndafræðina, strúktúrinn og efniskenndina á bak við handverkið. Blásið er til uppboðs á verkum sýningarinnar laugardaginn 6. maí kl. 14:00

Önnur bók verkefnisins kynnt í Hafnarhúsinu á HönnunarMars. Í bókinni er leitað lengra inn í heim innanhúskaðla for-móderníska heimilisins í gegnum texta, sjónræna frásögn, skrásetningu tilrauna og vinnslu nýrra hluta.
Dagskránna í heild má nálgast hér.