Sport

Dag­skráin í dag: Besta deildin, raf­í­þróttir og stór­leikur í Olís-deild karla

Smári Jökull Jónsson skrifar
Haukar og Afturelding mætast á Ásvöllum í kvöld en Mosfellingar leiða eftir fyrsta leik undanúrslitanna.
Haukar og Afturelding mætast á Ásvöllum í kvöld en Mosfellingar leiða eftir fyrsta leik undanúrslitanna. Vísir/Hulda Margrét

Sportrásir Stöðvar 2 eru stútfullar af efni í dag. Haukar og Afturelding mætast í undanúrslitum Olís-deildar karla í handknattleik og þá fara fram þrír leikir í Bestu deild karla auk þess sem nóg verður að gera í heimi rafíþrótta.

Stöð 2 Sport

Klukkan 17:15 verða Bestu mörk kvenna í beinni útsendingu þar sem farið verður yfir síðustu umferð í deildinni. Klukkan 17:50 förum við síðan til Eyja þar sem ÍBV og Víkingur mætast í Bestu deild karla.

Klukkan 20:00 verður síðan sýnt beint úr Árbænum þar sem heimamenn í Fylki taka á móti Breiðablik í Bestu deild karla. Stúkan verður síðan í beinni útsendingu klukkan 22:20 þar sem Gummi Ben og félagar fara yfir allt það helsta úr leikjum umferðarinnar.

Stöð 2 Sport 2

Ítalska deildin er í fullum gangi og klukkan 16:20 verður leikur Udinese og Sampdoria sýndur beint. Klukkan 18:35 verður síðan seint beint frá leik Sassuolo og Bologna í sömu deild.

20:45 skiptum við svo um gír en þá verða Lögmál leiksins í beinni en úrslitakeppnin í NBA-deildinni er í fullum gangi þessa dagana.

Stöð 2 Sport 3

Ítalski boltinn verður einnig í beinni á Stöð 2 Sport 3. Leikur Empoli og Salernitana verður sýndur klukkan 16:20. 

Stöð 2 Sport 5

Klukkan 19:00 hefst útsending frá Ásvöllum þar sem leikur Hauka og Aftureldingar í Olís-deild karla fer fram. Afturelding leiðir 1-0 eftir fyrsta leikinn og því pressa á Haukum að vinna á heimavelli.

Seinni bylgjan verður í beinni strax eftir leik þar sem Stefán Árni Pálsson fara yfir leiki undanúrslitanna.

Besta deildin 2

FH og Keflavík mætast í Bestu deild karla og hefst útsending klukkan 19:05.

Stöð 2 Esport

Það verður nóg um að era á Stöð 2 Esport í dag og beinar útsendingar frá fyrsta degi BLAST.tv Paris major mótinu. Útsending hefst með upphitun klukkan 8:30 og síðan verða leikir í beinni útsendingu allan daginn og allt fram á kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×