Lífið

Frægir fögnuðu krýningu Karls III

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Það var líf og fjör í breska sendiráðsbústaðnum síðastliðinn laugardag.
Það var líf og fjör í breska sendiráðsbústaðnum síðastliðinn laugardag. SAMSETT

Breska sendiráðið í Reykjavík hélt upp á krýningu nýs Bretakonungs með pomp og prakt síðastliðinn laugardag. Veislan var haldin í sendiráðsbústaðnum við Laufásveg og í veislutjöldum í garðinum og mættu boðsgestir úr ýmsum áttum, svo sem úr pólitík, viðskiptalífinu og menningargeiranum.

Margt var um manninn og mættu ýmis þekkt andlit í sínu fínasta pússi til að fagna þessum sögulega viðburði þar sem Karl III fór frá því að vera prins yfir í að verða konungur.

Í veislunni var einnig fjöldi manns í einkennisbúningum en herskipið HMS Northumberland úr breska konunglega sjóhernum er í höfn við Reykjavík. Skipverjar voru meðal starfsmanna og gesta og vöktu mikla lukku viðstaddra að sögn Berlindar Jónsdóttur, samskipta- og markaðsstjóra breska sendiráðsins.

Þórdís Kolbrún utanríkisráðherra hélt ræðu ásamt breska sendiherranum Dr. Bryony Mathew og haldið var happdrætti með ýmsum breskum vörum í vinning. 

Hér má sjá nokkrar vel valdar myndir af deginum frá sendiráðinu:

Þær Anna Lilja Þórisdóttir, Harpa Hrund Berndsen, Svanhvít Friðriksdóttir, María Jóhannsdóttirm, Guðný Ósk Laxdal og Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir skemmtu sér vel.Breska sendiráðið
Glæsilegu hjónin Bergþór Pálsson og Albert Eiríksson. Breska sendiráðið

Dr Bryony Mathew sendiherra Bretlands var glæsileg í konungsbláum kjól.Breska sendiráðið
Berglind Jónsdóttir, samskipta- og markaðsstjóri breska sendiráðsins, og maki hennar Halldór Arnarsson.Breska sendiráðið

Áhrifavaldarnir og athafnakonurnar Andrea Magnúsdóttir og Erna Hrund Hermannsdóttir í sínu fínasta pússi.Breska sendiráðið

Hanna Katrín Friðriksdóttir þingmaður og Svanhildur Hólm framkvæmdarstjóri Viðskiptaráðs Íslands.Breska sendiráðið

Hljómsveitin Piparkorn tróð upp. Breska sendiráðið

Kjartan Ólafsson framkvæmdastjóri Transition Labs, Helgi Björgvinsson stjórnandi hjá Icelandair, Marta Jónsdóttir frá Utanríkisráðuneytinu og Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir framkvæmdarstjóri Klak - Icelandic Startups.Breska sendiráðið

María Margrét Jóhannsdóttir blaðamaður, Harpa Hrund Berndsen frá Reykjavíkurborg og Ragnar Jónasson rithöfundur.Breska sendiráðið

Védís Kjartansdóttir og Ævar Þór Benediktsson, sem er hvað þekktastur sem Ævar vísindamaður.Breska sendiráðið

Japanski sendiherrann Suzuki Ryotaro ásamt skipverjum HMS Northuberland.Breska sendiráðið

Skipverjar HMS Northuberland.Breska sendiráðið

Þórdís Kolbrún utanríkisráðherra lyftir glasi.Breska sendiráðið

Hjónin Logi Bergmann og Svanhildur Hólm.Breska sendiráðið

Rúna Vigdís Guðmarsdóttir frá Rannís og Ásgerður Kjartansdóttir sérfræðingur hjá Mennta- og barnamálaráðuneytinu.Breska sendiráðið

Tengdar fréttir

Krýning Karls III Bretakonungs í myndum

Það var mikið um dýrðir þegar Karl III Bretakonungur var krýndur í dag. Fjöldi fólks fagnaði með konungsfjölskyldunni en fleiri en 50 lýðveldissinnar voru handteknir af lögreglu. 

Vil­hjálmur sagði að Elísa­bet hefði verið stolt

Tónleikar fóru í dag fram við Windsor-kastala í London í tilefni af krýningu Karls III Bretakonungs í gær. Segja má að viðburðurinn í dag hafi náð hámarki þegar Vilhjálmur krónprins tók til máls og klöppuðu áhorfendur gríðarlega þegar hann gekk upp á sviðið.

Karl krýndur konungur

Karl þriðji var í dag krýndur konungur Bretlands. Krýningarathöfnin hófst formlega klukkan tíu í morgun en á þriðja þúsund manns var boðið til athafnarinnar. Nokkrir mótmælendur voru handteknir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.