Lagið má heyra í spilaranum hér að neðan:
Diljá segir að lagið hafi orðið til á stuttum tíma og ferlið hafi gengið hratt fyrir sig.
„Oft taka lög langan tíma að verða til en Power og Crazy komu bæði mjög hratt. Við vorum undir tímapressu því við vildum klára það áður en við fórum til Liverpool. Það var mikið að gera á milli Söngvakeppninnar og Eurovision en við náðum þessu þó og þetta kom ótrúlega náttúrulega og þægilega.“
Hún segir hugmyndina á bak við lagið vera að mörgum finnist klikkað þegar aðrir elta draumana sína.
„Það er smá crazy að ákveða: Ég ætla að vera tónlistarkona. Það er smá crazy draumur og óhugnanleg stefna. En ég hef trú á þessu, ætla að leggja háskólann á hilluna og fara í þetta af fullum krafti.“
Hún segir að fólk bregðist oft við með því að lofsama háskólagráðuna.
„En kallið mig þá bara klikkaða því ég hef bullandi trú á því að ég sé að fara alla leið. Þannig að það er pælingin á bak við textann. Pálmi kom með hugmynd að gera lag sem er með svipaða orku og takt og Power og svo komum við upp með þessa hugmynd á boðskapnum á bak við textann. Við púsluðum því saman og þetta gekk frekar hratt upp. Ég er svo ánægð með útkomuna og ég elska textann svo mikið.“
Diljá segist fá svipaða tilfinningu við að hlusta á Power og Crazy.
„Þetta eru bæði svona lög sem þú getur misst vitið við á góðan hátt við að hlusta á, sleppt þér og dansað.
Það var ótrúlega gaman að flytja þetta lag og ég elska pælinguna á bak við þetta, því þetta er mér hjartans mál.
Ég fór á listabraut í Verzló því að ég ætlaði að verða leikkona. Svo náðu þessar raddir til mín sem sögðu hey það er pínu crazy að stefna þangað. Viltu ekki frekar fara á náttúrufræðibraut, þá geturðu allavega farið í verkfræði.
En ég ætla bara að leggja allt til hliðar og setja alla orkuna í að geta gert það sem mig langar, sem er að verða tónlistarkona og leikkona,“ segir Diljá að lokum.
Íslenski listinn er fluttur alla laugardaga á milli klukkan 14:00 og 16:00.
Lög Íslenska listans:
Íslenski listinn á Spotify: