Lífið

Edda Hermanns og Rikki Daða kaupa glæsihöll á Seltjarnarnesi

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Edda og Ríkharður eiga samtals fjögur börn.
Edda og Ríkharður eiga samtals fjögur börn.

Edda Hermannsdóttir markaðsstjóri Íslandsbanka og Ríkharður Daðason fjárfestir hafa keypt 500 fermetra glæsihöll við Bakkavör á Seltjarnarnesi. 

Ásett verð fyrir húsið voru 350 milljónir og var teiknað af Kjartani Sveinssyni árið 1990. Húsið er afar vandað með gegnheilu parketi og Versace flísum á gólfum. Ellefu herbergi eru í húsinu sem er á tveimur hæðum. Smartland greinir frá.

Húsið er á suðurströnd Seltjarnarness.Gunnar Örn

Hjónin sem giftu sig á Ítalíu í fyrrasumar söðla því um af Sunnuveginum í Laugardalnum og yfir á Seltjarnarnesið. Edda var áður búsett á Seltjarnarnesi með fyrrverandi eiginmanni sínum og heldur því aftur á kunnuglegar slóðir. Börn hennar úr fyrra sambandi þekkja því vel til á Nesinu auk þess sem Ragnheiður dóttir Ríkharðs spilar í sumar knattspyrnu með nágrönnunum í KR.

Tvöfaldur bílskúr bíður stóru fjölskyldunnar.Gunn­ar Örn
Edda og Rikki munu vafalítið koma sér vel fyrir á nýja staðnum með fjölskyldunni.Gunn­ar Örn

Vísir greindi frá því þegar hjónin settu einbýlishús sitt við Sunnuveg í Laugardalnum á sölu í desember á síðasta ári. Sú eign var um 280 fermetra að stærð með fjórum herbergjum, og ætti því nú að vera nóg pláss fyrir Eddu, Rikka og börnin fjögur á nýju og glæsilegu heimili.

Baðherbergið er glæsilegt.Gunnar Örn

Telja má líklegt að Edda og Rikki reyni að komast að í golfklúbbnum á Seltjarnarnesi eins fljótt og auðið er. Þau spila mikið golf saman en biðlistinn á Nesinu er þó þekktur fyrir að vera langur.

Pallurinn verður flottur í grillið í sumar.Gunnar Örn

Edda og Ríkharð gengu í það heilaga við fallega athöfn á Ítalíu árið 2022 eftir að hafa trúlofað sig eftirminnilega árið 2018, í brúðkaupi Ragnhildar Steinunnar og Hauks Inga í Verona á Ítalíu. Fyrst var greint frá sambandi þeirra í maí 2017.


Tengdar fréttir

Edda Hermanns og Ríkharður Daða héldu draumabrúðkaup á Ítalíu

Edda Her­manns­dóttir, sam­skipta­stjóri Ís­lands­banka, og Rík­harður Daða­son, fjár­festir og fyrr­verandi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu héldu draumabrúðkaup á Ítalíu. Birgitta Haukdal, Ragnhildur Gísladóttir og Andri Guðmundsson sáu um að skemmta gestum í veislunni. 

Edda Hermanns og Rikki Daða eignuðust son

Edda Her­manns­dóttir, sam­skipta­stjóri Ís­lands­banka, og Rík­harður Daða­son, fjár­festir og fyrr­verandi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu, hafa eignast son.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.