Lífið

Björg og Tryggvi nefndu soninn

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Björg Magnúsdóttir og Tryggvi Þór Hilmarsson eignuðust son þann 7. desember síðastliðinn.
Björg Magnúsdóttir og Tryggvi Þór Hilmarsson eignuðust son þann 7. desember síðastliðinn. Instagram

Sonur fjölmiðlakonunnar Bjargar Magnúsdóttur og auglýsingahönnuðarins Tryggva Þórs Hilmarssonar var nefndur Tómar Kári við hátíðlega athöfn um helgina.

Björg greinir frá nafngiftinni í skemmtilegri myndafærslu á samfélagsmiðlinum Instagram. 

„Hann heitir Tómas Kári Tryggvason og er óendanlega heppinn með fólkið sitt. Takk fyrir ógleymanlegan dag,“ skrifar Björg við færsluna.

Tómas Kári, eða Tommi eins og Björg skrifar í hringrásina (e.story), kom í heiminn 7. desember og er fyrsta barn Bjargar en þriðja barn föður­ins. Auk þess eiga þau hundinn Skugga.

Fyrst var greint frá sambandi Bjargar og Tryggva í nóvember 2020.


Tengdar fréttir

Björg og Tryggvi eignuðust son

Fjölmiðlakonan Björg Magnúsdóttir og auglýsingahönnuðurinn Tryggvi Þór Hilmarsson eignuðust son þann 7. desember síðastliðinn. Frá þessu greinir Björg á Instagram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.