Liver­pool getur ekki hætt að vinna og lætur sig dreyma um Meistara­deild Evrópu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Curtis Jones skoraði tvennu í kvöld.
Curtis Jones skoraði tvennu í kvöld. EPA-EFE/Peter Powell

Liverpool vann einstaklega þægilegan 3-0 sigur á Leicester City í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Sigurinn heldur vonum Liverpool um Meistaradeildarsæti á lífi.

Liverpool byrjaði leikinn af krafti en Curtis Jones skoraði tvívegis í fyrri hálfleik, bæði skiptin eftir sendingu frá Mohamed Salah. Heimamenn í Leicester eru í bullandi fallbaráttu en sýndu lítið líf í leik kvöldsins og voru 0-2 undir í hálfleik.

Í síðari hálfleik fullkomandi Mo Salah stoðsendingarþrennu sína þegar hann lagði upp þriðja mark gestanna á Trent Alexander-Arnold. Fleiri urðu mörkin ekki og Liverpool vann 3-0 útisigur.

Sigur Liverpool þýðir að liðið hefur nú unnið sjö leiki í röð. Eftir 36 leiki er Liverpool nú með 65 stig í 5. sæti, stigi minna en Newcastle United og Manchester United sem eru í sætunum fyrir ofan. Liverpool hefur þó leikið leik meira.

Leicester er á sama tíma í 19. sæti með 30 stig, tveimur frá öruggu sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira