Umfjöllun: Valur - Keflavík 0-0 | Marka­laust í bragð­daufum leik á Hlíðar­enda

Dagur Lárusson skrifar
Hart barist í leik kvöldsins sem fór fram á Origo vellinum að Hlíðarenda
Hart barist í leik kvöldsins sem fór fram á Origo vellinum að Hlíðarenda Vísir/Pawel Cieslikiewicz

Valur og Kefla­vík gerðu marka­laust jafn­tefli í leik liðanna í áttundu um­ferð Bestu deildar karla í kvöld.

Fyrir leikinn í dag var Valur í öðru sæti deildarinnar með á­tján stig á meðan Kefla­vík var í ellefta sætinu með fjögur stig.

Vals­menn stýrðu ferðinni allt frá byrjun leiks en fyrsta færi leiksins leit dagsins ljós á fimmtu mínútu en þá fékk Andri Rúnar sendingu inn á teig og hann lyfti boltanum yfir sig og varnar­mann, beint í hlaupa­leiðina hjá Tryggva Hrafni sem tók skot en hitti boltann ekki nægi­lega vel og skot hans því rétt fram hjá. Besta færi Vals­manna í fyrri hálf­leiknum.

Staðan var marka­laus í hálf­leik en Valur hélt á­fram að stýra ferðinni í seinni hálf­leiknum. Besta færi Vals­manna í seinni hálf­leiknum kom á 75. mínútu en þá átti Tryggvi Hrafn full­komna sendingu inn á teig hægra megin þar sem Birkir Már kom á ferðinni og gaf boltann fyrir þar sem Andri Rúnar lúrði og potaði boltanum að marki en Mathias gerði sig breiðan í markinu og varði vel.

Vals­menn reyndu hvað þeir gátu að ná sigur­markinu en þeir náðu því ekki og því voru loka­tölur 0-0.

Af hverju skildu liðin jöfn?

Liðs­menn Kefla­víkur vörðust virki­lega vel í dag og gáfu Vals­mönnum fá færi. Bar­áttu­andinn og krafturinn var ber­sýni­legur og var Sigurður Ragnar, þjálfari Kefla­víkur, virki­lega á­nægður með sína menn eftir leik.

Hverjir stóðu upp úr?

Öll Kefla­víkur-vörnin verður að fá hrós skilið fyrir þennan leik sem og Mathias í markinu sem varði vel þegar hann þurfti.

Hvað fór illa?

Arnar Grétars­son, þjálfari Vals, talaði um það eftir leik að honum fannst mögu­lega vanta upp á meiri hreyfan­leika í sókninni og það var ef­laust rétt hjá honum.

Hvað gerist næst?

Næsti leikur Vals er gegn Breiða­blik á fimmtu­daginn og næsti leikur Blika eftir þann leik er gegn Kefla­vík sem er ein­mitt næsti leikur Kefla­víkur liðsins.

Sigurður Ragnar Eyjólfs­son: Sterkt stig á úti­velli gegn einu besta liði landsins

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Keflavíkur á hliðarlínunni í kvöldVísir/Pawel Cieslikiewicz

„Mér fannst við vera mjög flottir í dag, sterkt stig fyrir okkur á úti­velli þannig ég er stoltur af strákunum,” byrjaði Sigurður Ragnar Eyjólfs­son, þjálfari Kefla­víkur, að segja í við­tali eftir leik.

„Þetta er eitt besta lið landsins og þess vegna er ég virki­lega á­nægður. Mér fannst vera góð bar­átta og mjög gott skipu­lag á liðinu og dugnaðurinn var á­þreifan­legur,” hélt Sigurður á­fram.

„Við fengum líka okkar færi þó svo að Vals­menn hafi fengið ör­lítið hættu­legri færi en þeir fengu samt sem áður ekki mikið af færum.”

„Þó svo að þeir hafi fengið að vera með boltann á á­kveðnum svæðum á vellinum að þá vörðumst við mjög vel á okkar vallar­helmingi og reyndum að beita skyndi­sóknum. Við hefðum getað gert að­eins betur í þeim skyndi­sóknum en það kemur bara því eins og ég segi þá er þetta lið í mótun.”

Arnar Grétars­son: Verðum að nýta færin sem við fáum

Arnar Grétarsson, þjálfari ValsVísir/Pawel Cieslikiewicz

„Nei, ég er engan veginn sáttur. Við ætluðum okkur að taka stigin þrjú í dag en það náðist ekki og ég því ekki sáttur,” byrjaði Arnar Grétars­son, þjálfari Vals, að segja eftir leik.

„Mér fannst frammi­staðan var allt í lagi á köflum en það er auð­vitað erfitt að spila gegn liði sem leggst niður með alla menn fyrir aftan boltann og þeir gerðu það mjög vel,” hélt Arnar á­fram að segja.

„Mér fannst við samt sem áður skapa nógu mikið af færum til þess að skora eitt mark og vinna leikinn en stundum er það bara þannig að boltinn vill ekki fara inn. En í dag vorum við ekki alveg á sama stað og við höfum verið sóknar­lega.”

Arnar vildi þó meina að þetta hafi verið mun betri frammi­staða heldur en gegn Grinda­vík í bikarnum.

„Mér fannst þetta vera mun betri frammi­staða en gegn Grinda­vík en það þarf ein­fald­lega að nýta þau færi sem maður fær og við gerðum það ekki í dag,” endaði Arnar á að segja.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira