Hætta á að ferðaþjónusta verði verðlögð of hátt og það dragi úr eftirspurn
![Ásberg Jónsson, forstjóri Travel Connect, segir að að stjórnmálamenn verði að gæta sín á komandi ári að renna ekki hýru auga á góðan rekstur ferðaþjónustufyrirtækja í ár. „Það má ekki auka skattlagningu á atvinnugreinina við þessar aðstæður,“ segir og nefnir að róðurinn muni þyngjast á næsta ári og fyrirtækin séu enn í sárum eftir Covid-19 heimsfaraldurinn.](https://www.visir.is/i/7153E2B6B548F1F1F3BB12FF4E794621F5E759D9A69E10C5D976E595A0ED41C1_713x0.jpg)
Rekstur fyrirtækja í ferðaþjónustu mun almennt ganga vel í ár. Aftur á móti er margt sem mun vinna á móti atvinnugreininni á næsta ári. Hætta er á að þjónustan verði verðlög of hátt sem mun draga úr eftirspurn. Hærri verð má rekja til mikillar verðbólgu, launa- og vaxtahækkana, segir forstjóri eins stærsta ferðaþjónustu fyrirtækis landsins í ítarlegu viðtali við Innherja.