Gamaldags vinabeiðni endaði sem hjónaband Íris Hauksdóttir skrifar 31. maí 2023 07:00 Halli Melló og Matthildur hafa verið saman í fjórtán ár. aðsend Leikarinn geðþekki, Hallgrímur Ólafsson kynntist eiginkonu sinni, Matthildi Magnúsdóttur fyrir fjórtán árum en þau gengu í hjónaband árið 2018. Saman eiga þau tvo syni en áður átti Halli, eins og hann er alltaf kallaður, dóttur úr fyrra sambandi. „
Hún addaði mér bara á Facebook,“ segir Halli spurður hvernig kynni þeirra hafi komið til í viðtalsliðunum Ást er. Vandræðalegi fyrsti kossinn virkaði „Ég var ekkert að samþykkja hvern sem er á þessum tíma en kannaðist svo við hana að ég taldi mig þekkja hana en kom því alls ekki fyrir mig hvaðan. Það var svo ekki fyrr en einhverjum dögum síðar að ég skildi afhverju ég kannaðist svona við hana. Ég var þá að horfa á sjónvarpið og þar mætti mér andlitið á henni. Hún var sem sagt þula á Rúv. Fyrsti kossinn: Vandræðalegur kveðjukoss eftir fyrsta stefnumót. Hann virkaði, held ég. Uppáhalds rómantíska kvikmyndin mín er: Ég verð seint talinn rómantískur, en fyrsta myndin sem við Matthildur horfðum á saman var Benjamín dúfa. Hún telst nú varla rómantísk en augnablikið var það vissulega. Halli segist seint verða talinn rómatískur.aðsend Mér finnst rómantískt stefnumót vera: Ég held að þú verðir að spyrja einhvern rómantískan að því. Fyrsta gjöfin sem ég gaf konunni minni: Lopapeysa, mjög flott frá Farmers Market. Ég er nokkuð viss um að hún hafi verið ánægð með hana því hún skilaði henni að minnsta kosti ekki. Fyrsta gjöfin sem Matthildur gaf Halla var að hans sögn afar rómantísk lopapeysa.aðsend Fyrsta gjöfin sem konan mín gaf mér: Hún gaf mér líka lopapeysu, mjög rómantíska lopapeysu. Ég er mikill Farmers Market maður og var yfir mig ánægður með hana. Konan mín er: Matthildur Magnúsdóttir. Sönn ást er að mati Halla að finna að maður skipti einhvern máli. aðsend Rómantískasti staður á landinu: Stofan í Staðarhvammi. Ást er: Að finna að maður skipti einhvern máli. Að finna að einhver sakni manns þegar maður er í burtu. Að finna að einhver gleðjist þegar maður er nálægur.
Ást er... Ástin og lífið Tengdar fréttir Huggulegt stefnumót með konunni endaði með söng uppi á sviði í Eldborg Það var margt um manninn í Eldborg síðastliðið laugardagskvöld þegar tónlistarmaðurinn Jón Ólafsson hélt stórtónleika í tilefni af 60 ára afmæli sínu. Hallgrímur Ólafsson leikari, jafnan þekktur sem Halli Melló, tók lagið með Jóni en var það þó algjörlega óundirbúið og hafði Halli ekki hugmynd um það, fyrr en hann var kallaður upp á svið fyrir framan um 1500 tónleikagesti. 24. apríl 2023 15:30 „Þetta kostaði bara lásasmið til þess að brjótast inn heima hjá okkur“ Leikarinn Hallgrímur Ólafsson, betur þekktur sem Halli Melló og Matthildur Magnúsdóttir lifa skemmtilegu lífi saman og kynntust eftir örlagaríkt „add“ á Facebook. Hann var ekki lengi að samþykkja vinabeiðnina enda kannaðist hann við Matthildi frá störfum hennar sem þula. 10. ágúst 2022 11:00 „Varð skotin í honum um leið og ég hitti hann“ Með huga fullan af hugmyndum og hjarta af eldmóð, réttlætiskennd og baráttuþreki hefur hin 25 ára Sólborg Guðbrandsdóttir lyft grettistaki í forvarna- og fræðslustarfi fyrir börn og unglinga. 26. október 2022 20:23 Mest lesið Einhleypan: „Veit ekki hvort ég kunni ekki að skammast mín“ Makamál Einhleypan: „Borða, ríða, elska“ Makamál „Á erfitt með að gera mér í hugarlund eitthvað rómantískara“ Makamál Einhleypan: Fangavörður, einlæg og skemmtileg Makamál Móðurmál: Tvær óvæntar þunganir eftir óútskýrða ófrjósemi Makamál Eru betri vinir, sterkari og hamingjusamari Makamál Bönnuð á Tinder fyrir lífstíð Makamál Íris Björk: „Kemur ástin ekki bara þegar hún á að koma?“ Makamál Hefur þú orðið ástfangin(n) í gegnum netið? Makamál Ríma-búið-bless Makamál Fleiri fréttir „Á erfitt með að gera mér í hugarlund eitthvað rómantískara“ Einhleypan: „Borða, ríða, elska“ Einhleypan: Fangavörður, einlæg og skemmtileg Móðurmál: Tvær óvæntar þunganir eftir óútskýrða ófrjósemi Einhleypan: „Veit ekki hvort ég kunni ekki að skammast mín“ Sjá meira
Huggulegt stefnumót með konunni endaði með söng uppi á sviði í Eldborg Það var margt um manninn í Eldborg síðastliðið laugardagskvöld þegar tónlistarmaðurinn Jón Ólafsson hélt stórtónleika í tilefni af 60 ára afmæli sínu. Hallgrímur Ólafsson leikari, jafnan þekktur sem Halli Melló, tók lagið með Jóni en var það þó algjörlega óundirbúið og hafði Halli ekki hugmynd um það, fyrr en hann var kallaður upp á svið fyrir framan um 1500 tónleikagesti. 24. apríl 2023 15:30
„Þetta kostaði bara lásasmið til þess að brjótast inn heima hjá okkur“ Leikarinn Hallgrímur Ólafsson, betur þekktur sem Halli Melló og Matthildur Magnúsdóttir lifa skemmtilegu lífi saman og kynntust eftir örlagaríkt „add“ á Facebook. Hann var ekki lengi að samþykkja vinabeiðnina enda kannaðist hann við Matthildi frá störfum hennar sem þula. 10. ágúst 2022 11:00
„Varð skotin í honum um leið og ég hitti hann“ Með huga fullan af hugmyndum og hjarta af eldmóð, réttlætiskennd og baráttuþreki hefur hin 25 ára Sólborg Guðbrandsdóttir lyft grettistaki í forvarna- og fræðslustarfi fyrir börn og unglinga. 26. október 2022 20:23