Lífið

Júníspá Siggu Kling: Brennandi þrá hjá Vatnsberanum

Sigga Kling skrifar

Elsku Vatnsberinn minn, þú yndislega, dásamlega jarðvera. Það er í eðli þínu að setja góða hluti allt í kringum þig og að skilja alls ekki að aðrir skilji þig ekki. Það er sá tími núna sem þú þarft að vera ákveðinn við sjálfan þig og að byggja þig upp alveg sama hvað.

  • Vatnsberinn er frá 20. janúar til 18. febrúar.

Þú ert á mjög góðu tímabili en hún er svo opin hugarorkan þín að þar getur sest að allskonar skítur sem að aðrir svo sannarlega eiga og kemur þínum karakter ekkert við. Þú breytir umhverfi þínu, ferð á eins konar flakk. Það toga svo margir staðir í þig og þú tekur skyndiákvarðanir, bara þetta eða hitt, en það mun hjálpa sálinni, styrkja þig og gera hugsun þína bjartari.

Slepptu því að vera reiður út í einhvern, því að sú reiði bitnar bara á þér og vex í kringum þig eins og svartnætti. Þar af leiðandi skaltu muna að þessi manneskja sem reiðin beinist að gaf þér eitthvað sem er mikilvægt í sambandi við framtíðina. Ástin er svolítið út um allt, það eru margir í þessu merki sem vita ekki alveg hvar hjarta þeirra á að vera, hvort sem þeir eru í sambandi eða ekki.

Þetta er svolítið vegna þess að þér leiðist tilbreytingarlaust ástarlíf og innst inni elskarðu spennuna. Það er nú ýmislegt að gerast í tilfinningalífinu þínu og þú finnur þessa brennandi þrá að gera eitthvað magnað. Þú ert á því tímabili að það sem þú hugsar sterkt um virðist birtast þér mjög fljótlega, svo ef þú vilt ekki eitthvað, varastu þá að hugsa um það.

Þú þarft að vita hversu magnaður þú ert og hversu mikið þú magnar upp það sem er í kringum þig og í þessu áhugaverða tímabili skaltu alls ekki treysta öllum fyrir þínum leyndarmálum. Það eru gamlir vinir að koma inn aftur og ný vinátta að fæðast, bara það mun gera næsta mánuð yndislegan.

Vatnsberar úr ýmsum áttum.

  • Hilmir Snær Guðnason, leikari, 24. janúar
  • Volodymyr Zelenskyy, forseti Úkraínu, 25.janúar
  • Ellen Degeneres, grínisti 26. janúar
  • Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, 26. janúar
  • Paul Newman, leikari, 26. janúar
  • José Mourinho, þjálfari í knattspyrnu, 26. janúar
  • Oprah Winfrey, sjónvarpskona, 29. janúar
  • Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, 1.febrúar
  • Christiano Ronaldo, knattspyrnumaður, 5. febrúar
  • Yoko Ono, mynd- og tónlistarkona, 18. febrúar





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.