Lífið

Tilkynntu kynið með frumlegum hætti

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Gunnar og Fransiska eiga eina dóttur fyrir og Gunnar son úr fyrra sambandi.
Gunnar og Fransiska eiga eina dóttur fyrir og Gunnar son úr fyrra sambandi. Gunnar Nelson

Gunn­ar Nel­son bardagakappi og Frans­iska Björk Hinriks­dótt­ir sálfræðingur eiga von á stúlku í ágúst. 

Parið deildi gleðitíðindunum í sameiginlegri færslu á samfélagsmiðlum sem sýndi mynd af börnum þeirra með sónarmynd í hönd.

 „Áætluð koma þriðju krútt­músar­inn­ar er í ág­úst,“ stóð í færslunni. 

Saman eiga þau eina dóttur fædda árið 2019. Fyrir á Gunnar einn son, Stíg Tý, fæddan árið 2014.

Auk þess birtu þau einkar skemmtilegt og frumlegt myndband sem greindi frá kyni barnsins. Þar má sjá Gunnar slá bolta með golfkylfu og Stíg Tý sparka í fótbolta. Við höggið og sparkið birtist fagurbleikur litur sem gefur til kynna að um stúlku er að ræða. 

Gunnar spjallaði um samband þeirra í viðtali við Einkalífið árið 2018 þar sem hann sagði Fransisku vera stelpuna fyrir sig.

 


Tengdar fréttir

Alnafni Gunnars Nelson er fjölhæfur tónlistarmaður

Bardagakappann Gunnar Nelson þekkja flestir Íslendingar en færri vita kannski að hann á alnafna sem hefur gert það gott í tónlistargeiranum í tæplega þrjá áratugi. Haraldur Dean Nelson, faðir íslenska Gunnars, segir þá feðga ekki hlusta á bandaríska tónlistarmanninn Gunnar Nelson.

„Hún er algjörlega stelpan fyrir mig“

Gunnar Nelson er besti bardagamaður Íslands og hefur náð gríðarlega langt í sínu sporti og þá sérstaklega í UFC. Hann er í 14. sæti á styrkleikalistanum hjá UFC og mætir Alex Oliveira í Toronto þann 8. desember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.