Lífið

Þrí­burakrílin komin með nöfn

Íris Hauksdóttir skrifar
Rannveig Hildur og Hallgrímur eignuðust þríbura nú um páskana en fyrir átti parið tvær dætur undir fimm ára aldri.
Rannveig Hildur og Hallgrímur eignuðust þríbura nú um páskana en fyrir átti parið tvær dætur undir fimm ára aldri. aðsend.

Rannveig Hildur Guðmundsdóttir og Hallgrímur Andri Ingvarsson eignuðust nýverið þríbura en fyrir átti parið tvær dætur á aldrinum tveggja til fimm ára. Fjölskyldan stækkaði því fljótt en nú hafa yngstu meðlimirnir fengið nöfnin sín við fallega athöfn fyrr í dag.

Rannveig Hildur tjáði sig í einlægu viðtali fyrir skömmu um líðan sína á meðgöngunni sem og á fyrstu vikum sængurlegunnar með börnin fimm sem braggast vel. 

Þríburakrílin dafnast vel.aðsend.

Yngstu krílin þrjú fengu nöfnin sín í dag við fallega athöfn sem haldin var á heimilinu. 

Fyrir átti parið dæturnar Kristínu og Margréti sem hjálpa mikið til með umönnun litlu systkina sinna.aðsend.

Helena Þóra, Ingvar Andri og Hafdís Gyða urðu fyrir valinu en eldri dæturnar tvær, Kristín María og Margrét Klara voru kampakátar við athöfnina. 

Skírnarveislan var haldin við hátíðlega athöfn þar sem nöfn þríburanna voru afhjúpuð.aðsend.

„Samtals erum við núna búin að setja saman tíu nöfn sem er magnað,“ segir Rannveig Hildur því öll bera börnin tvö nöfn. Fæst þeirra eru samin út í bláin. „Einkasonurinn fékk nafn pabba síns að hluta til en hann heitir Hallgrímur Andri Ingvarsson - sá litli Ingvar Andri. Stelpurnar heita svo Hafdís Gyða, seinna nafnið eftir móður minni, Gyðu og Helena Þóra, seinna nafn eftir ömmu Hallgríms, en Helena og Hafdís eru bæði nöfn sem við völdum út í loftið,“ segir Rannveig Hildur brosandi að lokum.


Tengdar fréttir

Undir lokin var líkaminn alveg búinn að gefast upp

Þau Rannveig Hildur Guðmundsdóttir og Hallgrímur A. Ingvarsson eignuðust þríbura síðastliðinn skírdag en fyrir á parið tvö börn á aldrinum tveggja til fimm ára. Fjölskyldan fór því fljótt úr vísitölustærð í heldur fjölmennari tölu og segist Rannveig Hildur helst hafa fengið áhyggjur af bílamálum.

Þrennir þríburar fæddust um páskana

Þrennir þríburar fæddust á fæðingardeild Landspítalans um páskana í ár. Tvö ár eru frá því að þríburar fæddust hér á landi. Frá árinu 2006 hafa átján þríburafæðingar orðið á Íslandi, að meðaltali ein á ári.

Þrennir þrí­­burar á einni viku mögu­lega heims­­met

Snjólaug Sveinsdóttir nýburalæknir á vökudeild Landspítala segir að fæðing þrennra þríbura á Landspítala um páskana gæti verið heimsmet. Hún fagnar tíðindunum en segist ekki vita af fleiri væntanlegum þríburafæðingum hér á landi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.