Suðræn stemmning í Garðabæ
Hörður Björgvin og unnusta hans Móeiður Lárusdóttir eru nýlega komin úr rómantískri ferð frá eyjunni Bahama og má ætla að Hörður hafi ekki viljað vakna frá þeim draumi og fært herlegheitin til Íslands.
Hörður og Viktor fögnuðu þrjátíu árum og mættu eins klæddir með blómakransa um hálsinn í veisluna sem haldin var á veitingastaðnum Sjáland í Garðbæ. Þá skemmtu tónlistarmennirnir Huginn, Joey Christ, Ingi Baure og Dj. Steven veislugestum.



Draumadagar á Bahama
Hörður Björgvin og Móeiður kvöddu Bahama í vikunni.
Fegurðardrottning gæsuð
Arna Ýr Jónsdóttir fyrrum Ungfrú Ísland var gæsuð af vinkonum sínum um helgina. Dagurinn byrjaði á dekri í Laugum Spa og pole-kennslu. Undralandsbræður sem samanstendur af leikaranum Aroni Má Ólafssyni, betur þekkt sem Aron Mola, og Arnari Þór Ólafssyni komu og skemmtu gæsahópnum.

Sól og ást á Akureyri
Ofurhlaupakonan Mari Jaersk og Njörður Lúðvíksson stungu af í sólina á Akureyri þar sem þau áttu notalegan dag í Skógarböðunum.
Fjölskyldan norður
Tískudrottningin Elísabet Gunnars og eiginmaður hennar Gunnar Steinn Jónsson nutu einnig sólarinnar á Akureyri liðna helgi þar sem þau gátu notið dögurðar utandyra.
Skálað í vindli
Tónlistarkonan Bríet Isis Elfar skálaði í vindli fyrir hlustendum sínum.
Erfiður maí
Erna Kristín Stefánsdóttir guðfræðingur og áhrifaldur segir lífið snúast um kúkableyjur og knús.
„Dagdreymin frá niðurgangspest, streptakokkum, veirusýkingu, hitapest, hósta og engum svefni í grámyglu, slyddu, snjó, gulri viðvörun og rigningu með úfið hár, bauga, í engum buxum og blautum sokkum,“ skrifar Erna við mynd af sér í þykkri úlpu í rigningu og roki.
Annie Mist komin á heimsleikana í Crossfit
CrossFit stjarnan Annie Mist Þórisdóttir tryggði sér sæti á heimsleikunum í CrossFit um helgina eftir frábæran árangur á undanúrslitamóti í Berlín.
Sundföt í stíl í brúðkaupsferðinni
Þjálfarinn og dansarinn Sandra Björg Helgadóttir og eiginmaður hennar Hilmar Arnarson eru stödd um þessar mundir í brúðkaupsferð sinni á Cabo í Kaliforníu, ásamt því að fagna 33 ára afmæli Hilmars. Sandra birti skemmtilega mynd af þeim hjónum þar sem þau voru klædd í sundföt í stíl.
Stefnumót í náttúrunni
Listaparið Íris Tanja Flygenring og Elín Ey áttu fullkomið stefnumót um helgina.
Nýtt lag hjá Patrik
Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason gaf út nýtt lag á dögunum, Fílessa lykt.
Fullkominn afmælisdagur
Leikkonan María Birta Bjarnadóttir átti fullkominn afmælisdag þökk sé eiginmanninum Ella Egilssyni og dóttur þeirra, en María varð 35 ára á dögunum.
Sjómönnum landsins fagnað
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra fagnaði Sjómannadeginum í gær og birti myndir af makríltúr sem hún fór í um árið.
Mæðgur og nöfnur
Tónlistarkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir birti fallega mynd af sér og yngsta gullinu og nöfnu sinni, Jóhönnu Guðrúnu eins árs.
Eyðimerkur myndataka LXS
Raunveruleikastjörnurnar Sunneva Einarsdóttir, Kristín Pétursdóttir og Birgitta Líf Björnsdóttir birtu seiðandi myndir úr eyðimörkinni á Kanarí sem voru teknar í ferð þeirra vinkvenna fyrr á árinu.
Óvænt ferð til Madrid
Pétur Björgvin Sveinsson unnusti ljósmyndarans Helga Ómarssonar kom honum á óvart með utanlandsferð til Madrid á Spáni í tilefni af hans 3. júní.