Sport

Dag­skráin í dag: Den­ver Nug­gets getur orðið NBA-meistari í fyrsta sinn

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Nikola Jokić getur í nótt orðið meistari í fyrsta sinn.
Nikola Jokić getur í nótt orðið meistari í fyrsta sinn. Vísir/Getty

Það er nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag og kvöld en stærsti leikur dagsins er viðureign Denver Nuggets og Miami Heat í úrslitum NBA-deildarinnar í körfubolta. Fari Denver með sigur af hólmi verður það meistari í fyrsta sinn í sögu félagsins.

Stöð 2 Sport

Klukkan 19.05 hefst útsending úr Laugardalnum þar sem Þróttur Reykjavík mætir Keflavík í Bestu deild kvenna í fótbolta.

Stöð 2 Sport 2

Klukkan 18.50 hefst útsending frá leik Joventut Badalona og Real Madríd í úrslitakeppni spænska körfuboltans.

Klukkan 00.00 hefst upphitun fyrir leik næturinnar í NBA-deildinni. Fimmti leikur Nuggets og Heat hefst svo 00.30.

Stöð 2 Sport 5

Klukkan 17.50 hefst útsending frá Vestmannaeyjum þar sem ÍBV mætir Breiðablik í Bestu deild kvenna.

Stöð 2 ESport

Klukkan 21.00 er Dælan á dagskrá.

Besta deildin

Klukkan 19.05 hefst útsending úr Garðabæ þar sem Stjarnan mætir FH í Bestu deild kvenna.

Besta deildin 2

Klukkan 19.05 hefst útsending frá Hlíðarenda þar sem Valur mætir Tindastól í Bestu deild kvenna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×