Lífeyrissjóðir færast nær því að fjárfesta í Controlant fyrir milljarða
![Daninn Søren Skou, fyrrverandi forstjóri skipaflutningarisans AP Moller-Maersk, er væntanlegur nýr stjórnarformaður Controlant en Gísli Herjólfsson er forstjóri félagsins.](https://www.visir.is/i/950A633BD75089CA637E5ED8B84760114ED206B7F769269C6655EF7CD9B4F56C_713x0.jpg)
Sumir af stærri lífeyrissjóðum landsins eru langt komnir í viðræðum um samanlagt meira en fimm milljarða króna fjárfestingu í Controlant sem er að auka hlutafé sitt og eins að sækja lán hjá erlendum sjóðum til að hraða enn frekar vaxtaráætlunum félagsins. Á aðalfundi síðar í vikunni verður stokkað upp í stjórn hátæknifyrirtækisins og til stendur að fyrrverandi forstjóri Maersk, stærsta skipaflutningafélags í heimi, komi þar nýr inn og muni síðar taka við stjórnarformennsku í Controlant.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/10CB8DD5FD439D27E5E0699127D0834599E5E3BAE4FC7EFCD14555548937A295_308x200.jpg)
Controlant hyggst flytja höfuðstöðvar sínar í heilsubyggð í Garðabæ
Íslenska tæknifyrirtækið Controlant, sem hefur gegnt lykilhlutverki í dreifingu og geymslu bóluefnaskammta gegn Covid-19 fyrir Pfizer, hefur undirritað viljayfirlýsingu um að flytja framtíðarhöfuðstöðvar sínar í nýja heilsubyggð sem félagið Arnarland hyggst reisa í Garðabæ við Arnarnesháls. Það er á mörkum Garðabæjar og Kópavogs, steinsnar frá íþróttahúsinu Fífunni.