Lífið

Hamagangur á Nesinu og flutningar

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Camilla Rut og Valli stefna á að flytja inn saman í lok sumars.
Camilla Rut og Valli stefna á að flytja inn saman í lok sumars.

Athafnakonan og áhrifavaldurinn, Camilla Rut Rúnarsdóttir, hefur í mörgu að snúast um þessar mundir í húsnæðismálum. Íbúðin sem hún hefur verið með á leigu síðastliðna mánuði er komin á sölu auk þess hún er í framkvæmdum á framtíðarheimili fjölskyldunnar á Seltjarnarnesi.

„Það er allt í hamagangi,“ segir Camilla, spurð hvernig framkvæmdum fram vindur þar sem hún og kærastinn,Valgeir Gunnlaugsson, þekktur sem Valli Indican, stefna á að flytja inn í byrjun ágúst.

Parið hefur verið í stórtækum breytingum á parhúsi sem Valli átti fyrir, og gerðu nánast fokhelt. Lögnum hússins hefur verið skipt út, nýju baðherbergi verður bætt við ásamt eldhúsi og hjónasvítu verður komið fyrir í gamla bílskúrnum, svo fátt eitt sé nefnt. 

„Þetta er alveg vinna sko, en Valli og tengdapabbi eru búnir að standa sig ótrúlega vel. Það er verið að klára að koma öllum milliveggjum upp,“ segir Camilla spennt fyrir komandi tímum.

Fyrir á Camilla á tvo drengi og Valli einn, sem sameinast nú undir einu þaki. 

Camilla hefur sýnt töluvert frá framkvæmdarferlinu á Instagram.

Ákváðu að fara í allan pakkann

Kveður Reykjanesið með þakklæti

Camilla hefur búið síðastliðin ár á Reykjanesi, síðast í 92 fermetra íbúð við Hjallaveg í Njarðvík, sem hún leigði eftir að hún og barnsfaðir hennar skildu.

Íbúðin er komin á sölu og er ásett verð fyrir eignina 49,9 milljónir. „Sæta fína er komin á sölu,“ skrifar Camilla á samfélagsmiðla um íbúðina.

„Elska þessa dásamlegu íbúð með góða andanum hennar. Þakklát fyrir millibilsstoppið hér,“ skrifar hún. 

Nánari upplýsingar um eignina má finna á fasteignavef Vísis. 

Eldhúsið og stofan eru í samliggjandi og björtu rými.Allt fasteignasala
Eldhúsinnréttingin er hvít með góðu skápaplássi.Allt fasteignasala
Heimilið er stílhreint í ljósum litum.Allt fasteignasala
Svefnherbergið er rúmgott og notalegt.Allt fasteignasala
Barnaherbergið er hlýlegt og mínimaliskt.Allt fasteignasala
Baðherbergi er flísalagt að hluta.Allt fasteignasala



„Við erum bara að njóta þess að kynnast og vera kærustu­par“


Tengdar fréttir

Ákváðu að fara í allan pakkann

„Það var auðvelt fyrir hann að selja mér pælinguna,“ segir Camilla Rut Rúnarsdóttir athafnakona og áhrifavaldur, um ákvörðunina að flytja inn með kærastanum, Valgeiri Gunnlaugssyni, oft þekktur sem Valli Flatbaka, í parhús á Seltjarnarnesi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.