Sport

Dagskráin í dag: Heil umferð í Bestu deildinni

Smári Jökull Jónsson skrifar
Agla María Albertsdóttir og stöllur hennar í Breiðablik mæta Þrótti í stórleik umferðarinnar í kvöld.
Agla María Albertsdóttir og stöllur hennar í Breiðablik mæta Þrótti í stórleik umferðarinnar í kvöld. Vísir/Vilhelm

Heil umferð er á dagskrá í Bestu deild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Breiðablik og Þróttur mætast á Kópavogsvelli í stórleik umferðarinnar. 

Stöð 2 Sport

Upphitun fyrir Bestu mörkin hefst klukkan 18:20 og klukkan 19:00 byrjar síðan bein útsending frá leik Breiðablik og Þróttar á Kópavogsvelli. 

Stöð 2 Sport 5

Klukkan 16:45 verður upphitun fyrir Bestu mörkin á dagskrá og 17:20 hefst útsending frá leik FH og ÍBV í Kaplakrika. 19:50 færum við okkur síðan yfir til Akureyrar þar sem norðanslagur Þór/KA og Tindastóls verður sýndur beint.

Besta deildin

Leikur Selfoss og Stjörnunnar verður í beinni útsendingu klukkan 17:50.

Besta deildin 2

Íslandsmeistarar Vals halda í heimsókn til Keflavíkur og verður sýnt beint frá leik liðanna klukkan 19:05.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×