Spá því að tekjur Controlant brjóti hundrað milljarða múrinn innan fárra ára
![Søren Skou, fyrrverandi forstjóri skipaflutningarisans AP Moller-Maersk, tekur við stjórnarformennsku í Controlant um næstu áramót en Gísli Herjólfsson er forstjóri félagsins.](https://www.visir.is/i/9A4A92A55A1493E0B61287DF1E0FE6657A4B5499F93F410952790D9606B99263_713x0.jpg)
Gangi áætlanir Controlant eftir, sem boðar mikinn vöxt í Bandaríkjunum, þá munu tekjur íslenska hátæknifyrirtækisins margfaldast og fara vel yfir 100 milljarða króna á allra næstu árum. Lífeyrissjóðurinn Gildi hyggst leggja félaginu til nærri þrjá milljarða í aukið hlutafé til að styðja við þann vöxt en verðmiðinn á Controlant um þessar mundir jafngildir rétt ríflega væntum árlegum rekstrarhagnaði samkvæmt spám stjórnenda.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/5D7738B4FA74A19DA10E2BDBB63534E38CC7561443AAE4154D3B48E5AB7CE2AB_308x200.jpg)
Controlant fengið 24 milljarða greidda fyrirfram frá lyfjarisanum Pfizer
Íslenska hátæknifyrirtækið Controlant, sem hefur gegnt lykilhlutverki í dreifingu og geymslu bóluefnaskammta gegn Covid-19 fyrir Pfizer, er með samkomulag við bandaríska lyfjarisann sem hefur tryggt félaginu verulegar fyrirfram innheimtar tekjur. Í árslok 2021 námu slíkar tekjur tengdar samningum við Pfizer um 174 milljónum Bandaríkjadala, jafnvirði tæplega 24 milljarða íslenskra króna, og koma þær að mestu inn í reksturinn á þessu ári og því næsta.