Veður

Bjart framan af en von á kröftugum skúrum

Árni Sæberg skrifar
Von er á vætu á suðvesturhorninu.
Von er á vætu á suðvesturhorninu. Vísir/Vilhelm

Lægðin sem legið hefur yfir landinu að undanförnu er nú að þokast til suðausturs. hún dregur norðlæga átt eftir sér inn á landið. Það mun gefa vætu á köflum fyrir norðan og austan og fremur svalt veður. Sunnan heiða verður bjart fyrripart dags en svo má búast við nokkuð kröftugum skúrum sem enst geta fram á kvöld. 

Þetta segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Þar segir jafnfram að hiti verði víða átta til fimmtán stig, en svalara við norðurströndina.

Þá segir að á morgun muni líklega bæta í vind og áfram verði svipað veður fyrir norðan og austan. Mun minni líkur verði hins vegar á skúrum á Suður- og Suðvesturlandi og þar gæti hitinn farið yfir 18 stig þar sem best lætur.

Veðurhorfur næstu daga:

Á mánudag:

Norðlæg átt 5-10 m/s. Skýjað og úrkomulítið norðan- og austantil á landinu og svalt í veðri, en bjartviðri á Suður- og Vesturlandi og hiti 12 til 20 stig, hlýjast sunnanlands.

Á þriðjudag og miðvikudag:

Norðlæg átt 5-13 m/s. Rigning eða súld norðan- og austanlands, en skýjað með köflum og þurrt að mestu um landið suðvestanvert. Hiti 7 til 15 stig að deginum, mildast sunnanlands.

Á fimmtudag og föstudag:

Norðlæg átt. Dálítil væta með köflum, en þurrt og bjart að mestu sunnan- og vestanlands. Hiti breytist lítið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×