Lífið

Fjóla úr Eigin konum á von á barni

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Fjóla og Ívar eiga von á sínu fyrsta barni. 
Fjóla og Ívar eiga von á sínu fyrsta barni.  Fjóla Sigurðardóttir

Fjóla Sigurðardóttir, fyrrum stjórnandi hlaðvarpsins Eigin konur, og Ívar Örn Árnason, knattspyrnumaður, eiga von á sínu fyrsta barni í byrjun næsta árs.

Parið deilir gleðitíðindunum í sameiginlegri færslu á samfélagsmiðlum í anda þess að Ívar er knattspyrnumaður hjá KA. 

„Félagsskiptaglugginn opnaði fyrr í H3 og við höfum gert 18 ára samning við mjög efnilegan leikmann sem kemur til leiks snemma í janúar. Ekki er vitað um þyngd, hæð né kyn leikmannsins eins og stendur en fleiri upplýsingar verða tilkynntar seinna,“ skrifar parið við myndina þar sem má sjá þau handsala samninginn um komu nýja liðsmannsins í fjölskylduna.

Fjóla hélt úti hlaðvarpinu Eigin konur ásamt Eddu Falak þar til í apríl í fyrra. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.