Lífið

Júlíspá Siggu Kling: Hrúturinn á ekki að treysta neinum

Sigga Kling skrifar

Elsku Hrúturinn minn, láttu lífið rugla þig. Þú elskar að hafa hlutina einfalda en kraftmikla. Það er margt að bjóðast þér og þú átt að velja sérstaklega það sem setur fjárhaginn í betra lag. Þú ert sterkasta peningamerkið, ef hægt er að segja svo. 

  • Hrúturinn er frá 21. mars til 19. apríl.

Þar af leiðandi áttu til að hugsa of langt fram í tímann, hvort að þú getir klárað þetta, keypt þetta og haft allt á hreinu. Þetta þýðir líka að þú ert ekki hér og nú og nýtur því ekki eins mikið litlu hlutanna og einföldu fallegu orkunnar sem er í kringum þig.

Ef þú opnar augun betur sérðu að þú ert búin að vera heppin þetta árið. Þó það hafi verið svört tímabil og þig langað jafnvel að gefast upp á einhverju, þá hefur þér alltaf verið bjargað. Út af því sérstaklega að þú ert sú persóna sem heldur alltaf áfram sama hvað mætir þér. 

Þú ert netið í fjölskyldunni sem passar upp á þína en það má kannski segja ef þú ert ungur hrútur þá færðu þessa tilfinningu ekki eins sterkt og hún mun verða. Nákvæmlega núna er lukkan að klappa þér svo hættu bara að hugsa fram í tímann og fagnaðu þeim áfanga sem þú ert þegar búin að ná. 

Það er gott fyrir þig að treysta ekki öllum og vera svolítið lokuð bók því að vera svona dularfullur gefur svo töfrandi útgeislun. Þess vegna vilja allir vita meira um þig. Það er mjög gott hjá þér að loka á eitruð samskipti sérstaklega ef þau hafa varað lengi. 

Það er eins og að gefa sömu manneskjunni alltaf séns og halda að það verði önnur útkoma en hefur verið, EKKI TIL Í DÆMINU. Ef þér leiðist í lífinu og ert búin að vera of lengi á sama stað þá skaltu opna augun því aðrir möguleikar eru nálægt þér. Ástin verður kraftmikil, en eitruð sambönd rofna til frambúðar.

Það sem er best í stöðunni er að vita að lífið leysir fyrir þig það sem þú hefur ekki tíma til að hugsa um.

Knús og kossar,

Sigga Kling

  • Marlon Brando, leikari, 3. apríl
  • Eddie Murphy, leikari, 3. apríl
  • Robert Downey Jr., leikari, 4. apríl
  • Heath Ledger, leikari, 4. apríl
  • Jackie Chan, leikari 7. apríl
  • Thomas Jefferson, fyrrum forseti Bandaríkjanna, 13. apríl
  • Emma Watson, leikkona, 15. apríl
  • Charlie Chaplin, grínisti, 16. apríl





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.