Lífið

Júlíspá Siggu Kling: Þú getur haft miklu meiri stjórn

Sigga Kling skrifar

Elsku Vogin mín, þú ert alltaf að stækka og eflast. Alveg sama hvort þú sért hrædd við eitthvað eða hafir kvíða, þá er það bara að mörgu eða öllu leiti bara þín eigin ímyndun. Þér finnst að þú hafir tapað einhverju frá þér eða ekki fengið þá samninga sem þú vildir.

  • Vogin er frá 23. september til 23. október.

En þér virðist vera rétt einhver ný leið svo að þú munt áorka því sem þú ætlar þér á skynsamlegri og betri vegu. Ekki vera reið því þá missir þú máttinn og láttu ekki neinn fara í taugarnar á þér, því það er valkostur. Þér finnst að þú hafir eytt of miklum tíma í eitthvað sem þér finnst þreytandi.

Þetta tengist jafnvel ástinni og þeirra hugmyndum um hvað skal gera, eða hindrunum sem eru ekkert sérstaklega að stoppa þig í neinu. Þú getur haft miklu meiri stjórn en mundu bara að fara vel að þeim manneskjum sem eru hjarta þínu tengd og finndu út hvernig þú átt gera lífið þitt og þeirra sem eru hjá þér meira skemmtilegt. Þó að þú þurfir að vera svolítið lúmsk þá áttu eftir að komast upp með það. 

Þú verður áberandi, fegurðin mun skína af þér það er nú einu sinni þannig að vogin er með fallegasta fólkið, skemmtilegasta fólkið er staðsett í þínu merki, svo ertu líka svo ansi orðheppin, með þetta þrennt að leiðarljósi leysir þú hnútana og verkefnin sem þér verða send eða þú sækir um ótrúlega léttilega. 

Þú raðar lífinu þínu upp eins og flottu púsluspili og finnur öll púslin sem þig vantar sem er dásamlegt. Þér finnst vera einhverskonar óréttlátar ásakanir í þinn garð þegar líða tekur á það gætu orðið deilur út af því.

Þetta tekur þú nærri þér en þetta er samt ekkert persónulegt svo skoðaðu þetta út frá því að þessu er ekki beint að þér. Þetta er visst dóminó eða fiðrilda áhrifin (butterfly affect) og er eitthvað sem að þú getur hvorki stoppað né breytt.

Knús og kossar

Sigga Kling

  • Will Smith, leikari, 25. september
  • Avril Lavigne, söngkona, 27. september
  • Friðrik Ómar, söngvari, 4. október
  • Lilja Dögg Afreðsdóttir, stjórnmálakona, 4. október
  • Friðrik Dór Jónsson, söngvari, 7. október
  • John Lennon, söngvari 9.október
  • Zac Efron, leikari, 18. október
  • Snoop Dogg, rappari, 20 október
  • Kim Kardashian, raunveruleikastjarna, 21. október





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.