Keppendur í ár eru nítján talsins og eru á aldrinum átján til tuttugu og átta ára. Alþjóðleg dómnefnd sér um að velja þá stúlku sem stendur uppi sem sigurvegari.
Stelpurnar hafa æft saman fyrir keppnina í allt sumar í aðstöðu hjá Reebok Fitness og munu þær gista saman í tvær nætur fyrir lokakvöldið á Hótel Múla.
Arnór Trausti Kristínarson ljósmyndari, myndaði stúlkurnar á dögunum en hárgreiðslustofan Blondie sér um hár og Reykjavík MakeUp Scool um förðun. Athygli vekur að í fyrsta skipti tekur móðir þátt í keppninni.
„Eins og alltaf er ég ótrúlega spennt að vinna með þessum glæsilegu ungu konum,“ segir Manuela Ósk Harðardóttir, annar eigandi keppninnar hér á landi.
„Það er svo gaman að sjá stelpurnar tengjast því það myndast ofsalega falleg vináttusambönd á hverju ári. Sjálf eignaðist ég margar af mínum bestu vinkonum í fegurðarsamkeppni fyrir rúmum tuttugu árum.“
Hér fyrir neðan má sjá stúlkurnar sem keppa um titilinn í ár.

Nafn: Maria Monica Luisa
Titill: Miss Kópavogur
Aldur: 28 ára
Starf: Sjúkraliðanemi
Afhverju ættir þú að verða næsta Ungfrú Ísland? Fyrst og fremst vil ég sanna það fyrir sjálfri mér að ef viljinn er fyrir hendi þá get ég náð öllum mínum markmiðum í lífinu. Markmiðið við að verða Ungfrú Ísland er að hvetja og veita meiri innblástur að halda áfram að reyna að ná sínum markmiðum þótt það séu hindarnir í lífinu. Það er alltaf hægt að finna leið, aldrei að gefast upp og númer eitt að trúa á sjálfan sig.
IG: mariamonicaluisa

Nafn: Helga Rós Arnarsdóttir
Titill: Miss Blue Mountains
Aldur: 23 ára
Starf: Flugfreyja hjá Icelandair og starfa í Under Armour Kringlunni
Af hverju ættir þú að verða næsta Ungfrú Ísland? Ég trúi því að ég sé góð fyrirmynd fyrir ungar stelpur. Ég lifi eftir því leiðarljósi að allir geta kennt mér eitthvað og nýti mér þau tækifæri. Ég er ákveðin, þrautseig og dugleg í því sem ég tek mér fyrir hendur. Ég er meðvituð um að við erum öll mannleg og gerum mistök, ég sýni mér sjálfsmildi og dreg mig ekki niður fyrir mistök mín heldur læri af þeim. Hver dagur er tækifæri til að hafa gaman og gera betur, að vakna á morgnana og velja að eiga góðan dag. Það er hugafar sem ég tel að Ungfrú Ísland ætti að hafa og því trúi ég að ég væri góður fulltrúi Íslands sem Ungfrú Ísland.
IG: helgarosarnars

Nafn: Kolbrún Bjarkey
Titill: Miss Northen Iceland
Aldur: 19 ára
Starf: Naglafræðingur
Afhverju ættir þú að vera næsta Ungfrú Ísland? Eftir langa og erfiða baráttu við kvíða og lítið sjálfstraust er ég loksins komin á góðan stað. Mig langar að fá tækifæri til þess að miðla minni reynslu og nýta hana til að veita öðrum stelpum innblástur líkt og fólkið mitt gerði þegar ég þurfti á því að halda.
IG: kolbrun_bjarkey

Nafn: Daníela Dís Jörundsdóttir
Titill: Miss 101 Reykjavík
Aldur: 20 ára
Starf: Rekstrarstjóri
Af hverju ættir þú að verða næsta Ungfrú Ísland? Ég er með sterka réttlætiskennd og langar að geta dreift góðum málefnum víða. Ég hef unnið við að safna styrkjum fyrir mismunandi góðgerðasamtök og séð hvað það getur verið erfitt fyrir samtök að fá styrki. Mig langar að auka áhuga annarra á góðum málefnum. Mér finnst allt sem við höfum lært alveg ofboðslega skemmtilegt. Svo er gaman að vera í sætum kjólum og flottum skóm, hverjum finnst ekki gaman að vera prinsessa stundum? Það væri algjör draumur að fá að halda áfram og fara út að keppa alþjóðlega. En sama hvað þá hef ég fengið að kynnast æðislegum stelpum og læra margt nýtt.
IG: danieladiis

Nafn: Valgerður Gunnarsdóttir
Titill: Miss Southern Iceland
Aldur: 19 ára
Starf: Frístundaleiðbeinandi
Afhverju ættir þú að verða næsta Ungfrú Ísland? Titillinn ætti að verða minn þar sem mig langar að vera góð fyrirmynd fyrir ungt fólk og sýna þeim að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Það er mikilvægt fyrir alla að fara út fyrir þægindarammann til að festast ekki í sama farinu. Ég vil auka vitund kvenna á kvennaathvarfinu á hjálpinni sem þar er veitt fyrir þá sem búa við líkamlegt eða andlegt ofbeldi. Ég er heilsteypt, hjálpsöm og hress stelpa sem fólk á skilið að kynnast í gegnum titlinn.
IG: _valaa_

Nafn: Kolfinna Mist Austfjörð
Titill: Miss Húsavík
Aldur: 26 ára
Starf: Ilmráðgjafi
Af hverju ættir þú að verða næsta Ungfrú Ísland? Ég hef verið sjálfboðaliði hjá Villikanínum síðustu árin við að bjarga kanínum sem hafa verið yfirgefnar af eigundum sínum og koma þeim á ný heimili. Þetta hefur undirbúið mig fyrir að sinna titlinum með umhyggju og virðingu fyrir öllum lifandi verum. Einnig hef ég mikla ástríðu fyrir að fræða um viðeigandi umhirðu gæludýra á samfélagsmiðlum. Ég tel mig góðan fulltrúi Íslands á alþjóðlegu sviði, þökk sé árunum sem ég bjó í Noregi. Þar kom ég fram fyrir Íslands hönd daglega. Ég sé Ísland í öðru og rómantískara ljósi enn fólk sem hefur búið hér alla ævi.
IG: mistyaustfjord

Nafn: Ástrún Birta Atladóttir
Titill: Miss Glacier Lagoon
Aldur: 19 ára
Starf: Starfa við heimaþjónustu á Norðurbrún 1 og Ísbúð skúbb með skóla.
Af hverju ættir þú að verða næsta Ungfrú Ísland? Ég vil vera góð fyrirmynd fyrir alla og láta gott af mér leiða. Ég vil miðla eigin reynslu hvernig maður stendur með sjálfum sér, ekki láta kvíða eða aðstæður stoppa sig. Ég hef mikinn áhuga á hegðun og líðan fólks og tel mig geta hjálpað mörgum að finna sér betri stað. Það er oft gott að þiggja hjálp frá öðrum og hafa góðar fyrirmyndir. Allir eiga rétt á því að vera eins og þeir vilja, maður getur allt sem maður ætlar sér og draumar geta ræst.
IG: astrun_birta

Nafn: Borghildur Birta Einarsdóttir
Titill: Miss Northern Lights
Aldur: 19 ára
Starf: Umönnun aldraða
Afhverju ættir þú að vera næsta Ungfrú Ísland? Ég er góð fyrirmynd, góðhjörtuð og þetta hefur verið draumur hjá mér síðan ég var mjög ung.
IG: Birta.einars

Nafn: Helena Hafþórsdóttir O’Connor
Titill: Miss Reykjavík
Aldur: 18 ára
Starf: Er í námi en vinn sem kaffibarþjónn/vaktstjóri á Te og Kaffi
Af hverju ættir þú að vera næsta Ungfrú Ísland? Það væri mér mikill heiður að vera valin næsta Ungfrú Ísland. Að bera þennan titil felur í sér frábær en um leið krefjandi tækifæri. Ungfrú Ísland þarf að vera landi og þjóð til sóma. Ég er tilbúin að leggja mig alla fram og tel mig hafa góða burði til að standa undir væntingum og vera góð fyrirmynd. Það er mér hjartansmál að hjálpað öðrum að elta drauma sína eins og ég er að gera með því að taka þátt í þessu ævintýri.
IG: Helenaoc

Nafn: Lilja Sif Pétursdóttir
Titill: Miss Capital Region
Aldur: 19 ára
Starf: Eir Hjúkrunarheimili
Afhverju ættir þú að verða næsta ungfrú Ísland? Ég ætti að verða næsta Ungfrú Ísland því ég er góð fyrirmynd, jákvæð, stend með sjálfri mér. Ég er opin fyrir nýjum tækifærum og alltaf tilbúin í það að fara út fyrir þægindarammann.
IG: liljapeturs

Nafn: Mina Fanney
Titill: Miss North Reykjvaik
Aldur: 26 ára
Starf: Hársnyrstimestari
Af hverju ættir þú að verða næsta Ungfrú Ísland? Ég tel mig góðan fulltrúa sem Ungfrú Ísland vegna þess að ég hef aldrei drukkið áfengi og reykt. Ég er dugleg að ferðast og hef gaman af nýjum tækifærum. Jákvæðni skiptir miklu máli í lífinu. Ég læt drauma mína rætast, nýlegasta dæmið um draum var nú þegar ég opnaði mína eigin hársnyrtistofu.
IG: minafanney

Nafn: Erla Dís Guðmundsdóttir
Titill: Miss Akranes
Aldur: 25 ára
Starf: Aðstoðarmaður fasteignasala á Lögheimili
Afhverju ættir þú að verða næsta Ungfrú Ísland? Virðing og skilningur í garð annarra hefur alltaf verið almenn skynsemi hjá mér. Afskiptasemi, gagnrýni og einelti er eitthvað sem mun því miður alltaf vera til staðar en það þýðir ekki að við eigum að hætta að hvetja fólk til að staldra við og gera betur. Ég trúi því að engin sé betri en annar, ekki starfið þitt, ekki kyn, húðlitur, fjárhagsstaða. Við eigum bara eitt líf, viljum við ekki gera þennan dýrmæta tíma sem við höfum ánægjulegan? Þetta eru mín gildi sem ég stend fyrir og ég tel að titillinn Ungfrú Ísland eigi að endurspegla sömu gildi.
IG: erladisgudmunds

Nafn: Tinna Lind Helgadóttir
Titill: Miss Diamond Beach
Aldur: 18 ára
Starf: Þjónn
Afhverju ættir þú að verða næsta ungfrú Ísland? Ég hef aldrei litið fallegum augum á sjálfa mig. Ég hef alltaf fundið eitthvað sem er að mér útlitslega. Ég horfði á myndir af módelum og hugsaði alltaf: afhverju lít ég ekki svona út. Þessi hugsun leiddi til mikillar vanlíðunar sem leiddi síðar til sjálfskaða og átröskunar. Í dag hef ég lært að elska sjálfa mig eins og ég er og ég vil hvetja fólk sem líður eins og mér leið, að læra að elska sig líka. Þess vegna ætti ég að verða næsta Ungfrú Ísland.
IG: Tinnaxlind

Nafn: Svava Rós Bernhöft
Titill: Miss Garðabær
Aldur: 18 ára
Starf: Pizzan símaver
Af hverju ættir þú að verða næsta Ungfrú Ísland? Að verða næsta ungfrú Íslands væri bæði heiður og mikil ábyrgð. Ég myndi nýta rödd mína til að berjast gegn einelti á Íslandi og veita innblástur fyrir ungmenni að koma vel fram við alla og fagna fjölbreytileikanum.
IG : Svavabernhoft

Nafn: Embla Ýr Pétursdóttir
Titill: Miss Akureyri
Aldur: 18 ára
Starf: Vinn á leikskóla
Af hverju ættir þú að verða næsta Ungfrú Ísland? Ég hef mikinn áhuga á því sem við erum að gera í Miss Universe Iceland og mér finnst mikilvægt að vera góð fyrirmynd. Það er svo mikilvægt að ýta sjálfum sér út fyrir þægindarammann og prófa nýja hluti. Síðan ég man eftir mér hef ég alltaf verið mjög hlédræg og feimin og því er stórt skref taka þátt. Þetta er gefandi og reynslumikið ferli. Ég er jákvæð, metnaðarfull og ákveðin sem tel vera góða eiginleikar fyrir Ungfrú Ísland að hafa.
IG: embla.yr

Nafn: Dimmey Rós Lúðvíksdóttir
Titill: Miss Central Reykjavík
Aldur: 23 ára
Starf: Ég vinn á Hrafnistu
Af hverju ættir þú að verða næsta Ungfrú Ísland? Ég er tilbúin að takast á við nýjar áskoranir og tækifæri. Mér finnst líka mjög mikilvægt að komast út fyrir þægindarammann minn.
IG: DimmeyRos

Nafn: Bahía Aurelie Ferro
Aldur: 21 árs
Titill: Miss Land of Fire and Ice

Nafn: Salbjörg Ragnarsdóttir
Titill: Miss Geysir
Aldur: 19 ára
Starf: Flugfreyia
Afhverju ættir þú að verða Ungfrú Ísland? Mér hefur fundist þetta skemmtilegt ferli og er viss um að hver sem er af okkur stelpunum sem vinnur verður frábær fulltrúi. Ef ég vinn mun ég gera mitt besta til þess að gera sem mest úr þessu tækifæri. Mig langar að styrkja sjálfstraust ungra kvenna á Íslandi og myndi ég leggja mikla áheyrslu á það í ferlinu mínu.
IG: salbjorgragnars

Nafn: Dagný Ósk Garðarsdóttir
Titill: Miss Midnight Sun
Aldur: 18 ára
Starf: Öldrunarheimilið Hlíð og sjúkraliðanemi
Afhverju ættir þú að verða næsta Ungfrú Ísland? Ég vil geta verið góður fulltrúi fyrir hönd Íslands, kynna land og þjóð og á sama tíma kynnast eflandi fólki frá öllum heimshornum.
IG: dagnygardars