„Ég get örugglega keypt mér sumarbústaðinn sem mér er búið að langa í lengi bara út af aldursmuni í parasamböndum,“ segir Theodór í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Varðandi það hvers vegna aldursmunur í samböndum getur valdið vandamálum segir Theodór:
„Það sem er fyrst og fremst vandi í aldursmuni í parasamböndum er það að fólk er yfirleitt á svo ótrúlega ólíkum stað. Það hefur ólíkar skoðanir, ólíkar upplifanir.“
Sem dæmi um þetta nefnir Theodór að hann hafi farið í afmæli um daginn. Þar hafi annar þeirra sem hélt upp á afmælið verið aðeins yngri en hann. „Mikið óskaplega var þetta leiðinleg tónlist,“ segir hann um tónlistina í afmælinu. „Ekki eitt lag með Bubba, ekkert með Villa Vill.“
„Ég er ekki að segja að þetta geti ekki gengið“
Thedór talar í viðtalinu um það að þroskast en hann segir að það sé haugalygi að fólk þroskist með aldrinum. „Við eldumst með aldrinum, við þroskumst við að lenda í alls konar áskorunum. Flest lendum við í áskorunum í lífinu og þar af leiðandi þroskumst við og það breytir okkur,“ segir hann.
„Það er oft þannig að þegar þú ert búinn að fara í gegnum ótrúlega mikið þá finnst þér ekkert ótrúlega alvarlegt þó að kötturinn þinn týnist í tvo daga.“
Þá sé yngra fólk bráðlátara og detti alls konar í hug. „Eins og að skreppa með litlum fyrirvara einhvert.“
Theodór ræðir einnig um börn fólks í samböndum með miklum aldursmuni, eldri einstaklingar eigi yfirleitt eldri börn og öfugt. „Þegar börnin þín eru á aldri við nýja makann þá erum við bara komin í alls konar hringiðu,“ segir hann.
„Ég er ekki að segja að þetta geti ekki gengið, alls ekki. Flest sambönd geta gengið ef menn setja í þau vinnu en það er samt svolítil áskorun.“