Lífið

Kristín Péturs fann ástina í faðmi hand­bolta­dómara

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Kristín og Þorvar hafa fundið ástina í örmum hvor annars.
Kristín og Þorvar hafa fundið ástina í örmum hvor annars.

Kristín Pétursdóttir, leikkona, flugfreyja og áhrifavaldur og handboltadómarinn Þorvar Bjarmi Harðarson hafa notið sólarinnar á höfuðborgarsvæðinu undanfarna daga.

Parið hefur verið saman um nokkurn tíma og virðist ástin blómstra á milli þeirra.

Í hringrásinni (e.story) á Instagram í gær mátti sjá þau njóta veðurblíðunnar í góðra vinahópi þar sem þau gerðu vel við sig í mat og drykk.

Kristín hefur gert það gott á fjölum leikhússana, meðal annars fyrir danska leikritið Mæður sem sýnt var í Iðnó í febrúar síðastliðnum.

Kristín á einn son úr fyrra samabandi. 

Notalegt í sólinni.Þorvar Bjarmi
Grillaðir hamborgarar í blíðunni.Kristín Péturs

Kristín var gestur í þættinum Einkalífið í fyrra þar sem hún spjallaði um lífið og tilveruna.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.