Handbolti

Lofaði að hjálpa dómara ef hann hag­ræddi úr­slitum leiks

Smári Jökull Jónsson skrifar
Fyrrum formaður dómaranefndar EHF, Dragan Nachevski, er í vandræðum þessa dagana vegna ásakana um spillingu.
Fyrrum formaður dómaranefndar EHF, Dragan Nachevski, er í vandræðum þessa dagana vegna ásakana um spillingu. Vísir/Getty

Fyrrum dómari í handbolta segir að þáverandi formaður dómaranefndar EHF hafi beðið sig að hagræða úrslitum í leik sem hann dæmdi. Þetta kemur fram í heimildamynd dönsku sjónvarpsstöðvarinnar TV2.

Spilling í handknattleiksheiminum hefur verið mikið í umræðunni síðustu daga, vikur og mánuði. Danska sjónvarpsstöðin TV2 sýndi heimildamynd í tveimur hlutum á dögunum þar sem meðal annars tálbeita var notuð til að blekkja fyrrum formann dómaranefndar EHF, Dragan Nachevski.

Þá var einnig fjallað um hagræðingu úrslita í stórum leikjum, meðal annars í Íslendingaslag GOG og Kadetten Schaffhausen árið 2020. Viktor Gísli Hallgrímsson lék með GOG á þessum tíma og Aðalsteinn Eyjólfsson var þjálfari Kadetten Schaffhausen.

Í þættinum í fyrrakvöld var fjallað enn frekar um hagræðingu úrslita. Þar var meðal annars rætt við fyrrverandi toppdómara í handbolta sem segir að Dragan Nachevski hafi haft samband við sig og beðið sig um að hafa áhrif á úrslit leiks sem hann átti að dæma.

„Fyrir mikilvægan leik hafði Dragan Nachevski samband við mig. Ef rétt lið myndi vinna þá hefði það góð áhrif á minn feril. Það myndi setja mig í stöðu að ég fengi betri möguleika að komast lengra í starfinu,“ sagði dómarinn sem kom ekki fram undir nafni.

Dómarinn sagði nei við tilboðinu en fór ekki með upplýsingarnar áfram til EHF.

„Mín reynsla frá þessum árum er að svona tilkynningar eru ekki teknar alvarlega. Þær enda bara neðst í einhverri skúffu.“

Sonur formanns dómaranefndarinnar, Giorgji Nachevski, er einn af þeim dómurum sem dæmt hefur í leikjum þar sem grunur leikur á að úrslitum hafi verið hagrætt. Hann mun þar að auki veria tengdur samtökum á Balkanskaganum sem þekktur er í þeim bransa.

Dragan Nachevski hefur sjálfur neitað öllum ásökunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×