Lífið

Dagur og Arna saman í aldar­fjórðung

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Dagur og Arna á brúðkaupsdaginn.
Dagur og Arna á brúðkaupsdaginn.

Dagur B. Eggerts­son, borgar­stjóri og Arna Dögg Einars­dóttir, læknir, hafa verið saman í aldar­fjórðung. Dagur deilir þessu á sam­fé­lags­miðlinum Face­book.

„Í dag - ná­kvæm­lega upp á dag - eru 25 ár síðan við Arna kysstumst, horfumst djúpt í augu og eigin­lega á­kváðum strax að eða ævinni saman. "Hvað eigum við að eignast mörg börn?", var reyndar það fyrsta sem ég sagði,“ skrifar borgar­stjórinn á ein­lægum nótum.

„Það er ekkert sjálf­sagt eða eðli­legt við að vera svo gæfu­samur. Enda er þakk­læti og ást yfir­gnæfandi til­finning þegar ég hugsa um þetta. Tuttugu og fimm ár! Fyrir­gefið mér væmni á en tak, takk, elsku, elsku Arna min - þú ert ein­stök og ég vona að við munum eiga tvö­faldan þennan tíma saman - að minnsta kosti.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.