„Þetta var magnaður dagur sem leið svo ótrúlega hratt,“ segir Katrín Edda í samtali við blaðamann.
„Athöfnin fór fram í Garðakirkju og veislan var haldin á Grand Hótel um kvöldið. Hún var æðislegt og allt var svo ótrúlega flott.“

Grátur og gleymdur blómvöndur
Hún segir þó ýmislegt óvænt hafa komið upp á stóra deginum sem ekki var hægt að undirbúa sig fyrir.
„Ég fór í hár og förðun hjá Alexöndru Sif um morguninn og besta vinkona mín kom með. Það var ótrúlega skemmtilegt en tíminn flaug frá okkur og allt í einu varð ég smá stressuð því við vorum eiginlega á seinustu stundu,“ segir Katrín Edda, sem er ekki mikið fyrir að vera óstundvís. Þegar hún var að mæta í kirkjuna fattaði hún svo að brúðarvöndurinn hafði gleymst í förðuninni.

„Berglind vinkona mín brunaði að sækja hann og þegar hún kom til baka var klukkan orðin rúmlega þrjú. Elísa Eyþóra stelpan mín sem er sjö mánaða var þá hágrátandi en hún átti að vera keyrð inn kirkjugólfið í voða krúttlegum vagni af litlu frænku minni. Það gekk hinsvegar ekki því hún var á orginu elsku barnið og frænka mín hélt því á henni inn.“

Andaði léttar eftir heitin
Katrín Edda segist því hafa verið smá stressuð í upphafi athafnarinnar.
„Mér leið ekkert sérstaklega vel því ég var búin að vera á þeytingi, Elísa var hágrátandi og mér fannst eins og ég væri að klúðra öllu sem var ógeðslega erfitt.“
Líðan Katrínar breyttist þó blessunarlega fljótt.
„Þegar það var búið að gifta okkur og Markus settist hliðina á mér þá fann ég hvernig ég andaði léttar og mér leið miklu betur. Það var búið að vera svo mikið að gerast og maður var búinn að vera smá upptjúnaður.“

Eftir athöfnina fóru brúðhjónin beint í myndatöku.
„Ívar Eyþórsson tók myndirnar og þær voru frábærar. Eva vinkona mín fór aðeins út með Elísu Eyþóru og hún sofnaði hjá henni en litla var búin að vera vakandi í sex tíma og var orðin mjög þreytt svo það var gott að ná að lúra smá. Hún kom svo með okkur í myndatökuna klukkutíma seinna og var miklu hressari.“

Fyndinn og krúttlegur brúðkaupsdans
Að myndatökunni lokinni tóku veisluhöldin svo við á Grand Hótel.
„Þar voru allir vinir okkar og okkar fólk og það var algjörlega yndislegt. Veislan var frábær. Berglind besta vinkona mín og Atli Viðar bróðir minn voru veislustjórar og svo hélt Atli Viðar partýinu gangandi fram á nótt sem DJ. Við Markus byrjuðum dansgólfið á rosa fyndnum og krúttlegum brúðkaupsdansi,“ segir Katrín brosandi.

„Þetta heppnaðist bara svo ótrúlega vel og alltof fljótt að líða einhvern veginn. Við erum núna í smá spennufalli á eftir þetta,“ segir Katrín Edda og bætir við að það verði gott að geta tekið því aðeins rólega.
„Ég hef samt ekkert náð að hvíla mig því við erum með þýska gesti í heimsókn og ég er búin að vera að plana í kringum þau sem er ótrúlega skemmtilegt. Við fórum með þau í Skylagoon í gær og út að borða og erum núna á leið í Reykjadal. Ég næ kannski að slaka á næstu helgi,“ segir hún að lokum og hlær.

Hér má sjá fleiri myndir af brúðkaupsdegi Katrínar Eddu og Markusar:











