Það var alveg þekkt að það veiddust stórar bleikjur í ánni en það heyrði til algjörra undantekninga að sjá að heyra af bleikjum um og yfir 70 sm að lengd. Staðan í dag eftir að sleppiskylda var sett á er sú að sífellt fleiri stórar bleikjur veiðast á hverju ári og er stærðin 50-60 sm bara "normið" í dag. Nýlega veiddust tvær bleikjur í þessari yfirstærð í ánni á svæði fimm og voru þær 70 og 72 sm. Eins og myndirnar bera með sér eru þetta virkilega fallegar og vel haldnar bleikjur.

Í samanburði við vinsæl ársvæði í norður Kanada og Grænlandi er ekkert óalgengt að veiða bleikjur sem eru 80-90 sm að stærð en sérstaklega í Kanada þar sem Veitt og Sleppt hefur verið við lýði á þessum svæðum í um það bil 30 ár. Afrakstur þessarar stefnu er að þarna hafa verið að veiðast bleikjur allt að 20 pundum og þá er bara spurning hvort það gerist hér líka? Veiðivísir væri í það minnsta alveg til í að takast á við bleikju í þeirru stærð.