Matthías Johannessen hefur sett eign sína við Reynimel á sölu.
Matthías Johannessen fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, rithöfundur, ljóðskáld og áhrifamaður innan Sjálfstæðisflokksins, hefur sett parhús sitt við Reynimel á sölu. Ásett verð fyrir fermetrana 240 eru 179 milljónir.
Um er að ræða fallegt og virðulegt parhús með bílskúr. Húsið var byggt árið 1947 en það er teiknað af Bárði Ísleyfssyni.
Í eigninni eru sjö svefnherbergi, tvö baðherbergi, stofa, eldhús og borðstofa en þaðan er gengið út í skjólstæðan garð sem vísar til suðvesturs. Af efri hæð eru svalir en í kjallara hússins er nýlega innréttuð stúdíóíbúð með með góðu geymslurými og þvottahúsi.
Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um húsið á fasteignavef Vísis en hér að neðan eru nokkrar vel valdar myndir.
Gengið er upp nokkur þrep úr stofu í borðstofu. Fallegur glerveggur aðskilur stofu og borðstofu að hluta til. Úr borðstofu er gengið út í garð.EignamiðlunStofan er mjög rúmgóð og með fallegum frönskum gluggum.EignamiðlunSteyptur teppalagður stigi er á milli hæða. Komið er í teppalagt hol. Stigahol er bjart með stórum glugga. Á efri hæð eru fjögur herbergi þar af þrjú mjög rúmgóð og eitt minna.EignamiðlunNýlega hefur verið innréttuð stúdíóíbúð í kjallara með eldhúskrók og baðherbergi.EignamiðlunHúsið er að miklu leyti í upprunalegu ástandi, koparþak er á húsinu. Eignamiðlun