Hjónin gengu í það heilaga með heiðinni athöfn í Alþingisgarðinum undir heiðskírum himni. Veislan var haldin á sama stað og þau hittust fyrst, í Iðnó, undir spili Heimilistóna en móðir brúðarinnar, Vigdís Gunnarsdóttir, er einn af stofnendum og söngkona hljómsveitarinnar.

Dansað fram á rauða nótt
Fimmtán ár eru nú liðin síðan þau Gunnur og Gunnlaugur sáust fyrst, á Heimilistónaballi í Iðnó. Það þurfti ekki mikið til. Allt var að hrynja í íslensku efnahagslífi en augu þeirra mættust á ballinu og segir Gunnlaugur það hafa verið ást við fyrstu sýn.

„Við hittumst fyrst í græna herberginu baksviðs í Iðnó,“ segir Gunnlaugur og heldur áfram.

„Fimmtán árum síðar erum við aftur komin hingað í Iðnó með fjölskyldu og vinum til þess að fagna ástinni. Það kom aldrei neitt annað til greina en að fá Heimilistóna, sem leiddi okkur svo að segja saman, til að spila fyrir okkur á stóra deginum. Mér finnst hringnum hafa verið náð.“

Hjónin hafa verið búsett í Stokkhólmi um nokkurt skeið ásamt börnum sínum tveimur þeim, Thor og Tinnu Vigdísi sem og hundinum Freyju og kettinum Óðni. Þar starfar Gunnur sem Head of Digital Strategy fyrir DDB Nord og Gunnlaugur sem sýndarveruleikahönnuður og forritari.

Hjónin voru bæði einkar glæsileg á brúðkaupsdaginn en brúðarkjóll Gunnar er hannaður af Justin Alexander. Þóra Ólafsdóttir sá um förðun brúðarinnar. Sjálfur sá brúðguminn um að semja brúðardansinn sem var að sögn gesta einn sá eftirminnislegasti.

„Ég vildi hafa fyrsta dansinn okkar undir laginu El duende af plötunni Tu Duende sem Egill Ólafsson, faðir minn, gaf út sem okkar fyrsta dans. Hann heppnaðist fáranlega vel.“
Ógleymanlegt í alla staði
Gunnlaugur segir kvöldið hafa verið ógleymanlegt í alla staði og allt hafa gengið eins og í sögu. „Veislustjórarnir Ólafur Egill og Esther Ösp fóru á kostum með uppákomum, ýmsum leikjum og vandræðasögum frá því við vorum lítil. Á efri hæðinni var svo hægt að skella sér í karaoke. Dóra Júlía þeytti skífur langt fram á nótt og undir lokin sameinuðust svo allir á dansgólfinu.“

Spurður hvernig undirbúningurinn hafi gengið fyrir sig segir Gunnlaugur að dágóður tími hafi farið í að skipurleggja stóra daginn. „Við ákváðum að hafa keppni á milli borða þar sem gestirnir fengu það markmið að kynnast betur. Það voru margar mjög fyndnar uppákomur.

Eitt það besta var sennilega sú hugmynd að við létum baka gervi brúðartertu sem við fengum þjónana til að missa í gólfið. Það var ótrúlega fyndið að sjá gestina missa andlitið og hlæja sig svo máttlausa þegar raunverulega kakan var borin inn.“

Spurð hvað þeim finnist ást vera svarar Gunnur: „Ást er nærvera og öryggi áður en ég sofna í þínum faðmi.“

Sömu spurningu svarar Gunnlaugur: „Ást er að loka augunum og vera leiddur inn í eitthvað óvænt með þínum kossi.“