Lífið

Skreytum hús: Hús­bíll Bylgju­lestarinnar tekinn í gegn

Boði Logason skrifar
Bíllinn er hinn glæsilegasti eftir breytingarnar
Bíllinn er hinn glæsilegasti eftir breytingarnar Skreytum hús

Í fyrsta örþætti í fjórðu seríu af Skreytum hús tekur Soffía Dögg Garðarsdóttir húsbíl Bylgjulestarinnar í gegn. 

Bíllinn er kominn til ára sinna og þurfti á mikilli ást að halda. Soffía Dögg fór heldur frumlega leið í að fríska upp á útlitið þar sem meðal annars límband, málning og blóm komu við sögu. 

„Sérð bara hvað er hægt að gera úr litlu ef maður er nógu sniðugur,“ sagði útvarpsmaðurinn Svali þegar hann kom inn í bílinn eftir breytingarnar.

Þáttinn má horfa á heild sinni hér að neðan. 

Klippa: Skreytum hús - Húsbíll Bylgjulestarinnar tekinn í gegn

Fjórða þáttaröðin af Skreytum hús, sem sýndir eru hér á Vísi og á Stöð 2+ efnisveitunni, fer í gang fljótlega. Í þáttunum tekur Soffía Dögg Garðarsdóttir rými í gegn og fá áhorfendur að fylgjast með ferlinu alveg frá byrjun.

Í hverjum þætti er tekið fyrir ákveðið verkefni og ræða svo íbúðaeigendur útkomuna í lok þáttar.

Horfa má á alla þættina af Skreytum hús hér:


Tengdar fréttir

Vilt þú taka þátt í fjórðu þátta­röð af Skreytum hús?

Vísir leitar nú að þátttakendum fyrir fjórðu þáttaröðina af Skreytum hús, sem sýndir eru hér á Vísi og á Stöð 2+ efnisveitunni. Í þáttunum tekur Soffía Dögg Garðarsdóttir rými í gegn og fá áhorfendur að fylgjast með ferlinu alveg frá byrjun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.