Rafmyntasjóðurinn Viska með 23 prósenta ávöxtun á fyrsta starfsári
![Daði Kristjánsson, framkvæmdastjóri Visku Digital Assets. „Að okkar mati er það versta yfirstaðið og útlitið fyrir næstu ár er afar spennandi,“ segir í bréfi rafmyntasjóðsins til fjárfesta.](https://www.visir.is/i/5926177DDD0CC8777FAB73207C019B0C52BBA872CBA51FE91FD1A1F784FC7691_713x0.jpg)
Ávöxtun rafmyntasjóðsins Visku nam 23 prósent á fyrsta starfsári sínu sem lauk í júní. „Það hefur sýnt sig að varfærin nálgun okkar og stífar kröfur gagnvart mótaðilum eru að skila árangri,“ segja stjórnendur sjóðsins. Fjölmargir rafmyntasjóðir hafi lent illa í því síðastliðið ár og hætt starfsemi í ljósi erfiðra markaðsaðstæðna. „Að okkar mati er það versta yfirstaðið og útlitið fyrir næstu ár er afar spennandi.“