Á meðan að kvennalið Víkings hefur aldrei áður spilað bikarúrslitaleik þá spila Blikakonur nú til úrslita þriðja árið í röð og hafa unnið keppnina 13 sinnum. Með sigri á morgun geta þær því jafnað Val yfir flesta bikarmeistaratitla, og væntanlega búast nánast allir við sigri Breiðabliks en Ásmundur lætur það ekki trufla sig:
„Við erum að fara í hörkuslag, bikarúrslitaleik, og bæði lið eru búin að vinna sér inn réttinn til að spila þennan leik. Víkingarnir eru með afgerandi forystu í Lengjudeildinni, búnar að slá út tvö Bestu deildarlið í bikarnum, og annað þeirra er í toppbaráttu, svo það væri galið að fara inn í þennan leik með eitthvað vanmat. Við þurfum á öllu okkar að halda. Við þurfum okkar bestu frammistöðu til að ná í sigur, sem er auðvitað markmiðið.“
Biðlar til Kópavogsbúa
En er ekki hætta á því að leikmenn sýni einhverja værukærð í leik við lið sem spilar ekki einu sinni í efstu deild, þó að Víkingur sé vissulega á toppi Lengjudeildarinnar?
„Ég ætla rétt að vona ekki. Við förum vel yfir það og það er bara ekkert í boði. Svo er bikarúrslitaleikur bara sérfyrirbæri og það er ekkert hægt að horfa á stöðu í deild eða í hvaða deild liðið er.“
„Stemningin á leikdegi getur ráðið úrslitum, og þar með getur stemningin í stúkunni ráðið ansi miklu þar um. Mér skilst að eins og staðan sé núna séum við að tapa þeirri baráttu. Það eru mun fleiri miðar seldir Víkingsmegin en okkar megin, svo ég kalla eftir því að Blikar og Kópavogsbúar fái sér miða, mæti í stúkuna og taki þátt. Komi með stemninguna til að hjálpa okkur að landa þessum bikar,“ segir Ásmundur en miðasala á leikinn er í fullum gangi á Tix.is. Viðtalið við Ásmund var tekið í gær og gæti staðan á miðasölu því hafa breyst.
En þó að áhuginn virðist eitthvað minni hjá stuðningsmönnum Breiðabliks en Víkings þá segir Ásmundur ekkert vanta upp á hungrið hjá þeim sem spila leikinn:
„Þú ert aldrei saddur og sæll af titlum eða bikurum. Þeir hafa margir komið í gegnum tíðina en miðað við ástandið á þeim sem eru í kringum mig þá er mikið hungur og við erum í þessu til þess að vinna titla. Þú vilt alltaf næsta titil og hann er í boði núna, en mun ekki koma nema að allir hjálpist að.“
Breiðablik mætir í úrslitaleikinn sem efsta lið Bestu deildarinnar, eftir jafntefli Vals og Stjörnunnar í gær, en Blikakonur hafa unnið góða sigra gegn Þór/KA og Selfossi í síðustu leikjum.
„Holningin á liðinu hefur verið ágæt. Eftir langt landsleikjahlé þá er jafnteflið í Kaplakrika vonbrigði, og það var smá hikst hjá okkur í þeim leik, en síðan hafa komið tveir góðir sigrar í kaflaskiptum leikjum. Ég myndi segja að ástandið á liðinu sé fínt komandi inn í þennan leik.“
Leikur Breiðabliks og Víkings hefst klukkan 19 á Laugardalsvelli annað kvöld og verður í beinni textalýsingu á Vísi.