Sport

Dagskráin í dag: Golfið ræður ríkjum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Bjarni Þór Lúðvíksson úr Nesklúbbnum sigraði Einvígið á Nesinu í fyrra.
Bjarni Þór Lúðvíksson úr Nesklúbbnum sigraði Einvígið á Nesinu í fyrra. nkgolf.is

Golfið verður í fyrirrúmi á Sportrásum Stöðvar 2 í dag þar sem sýnt verður frá  og þá verður einnig frumsýndur þáttur um Einvígið á Nesinu.

Við hefjum leik klukkan 11:00 þegar þriðji dagur AIG Women's Open fer fram, en bein útsending frá mótinu verður á Stöð 2 Sport 4.

Þá sýnum við einnig þátt um Einvígið á Nesinu. Góðgerðarmót Nesklúbbsins, Einvígið á Nesinu, var haldið í 27. sinn á frídegi verslunarmanna. Bestu kylfingar landsins tóku þátt en mótið var nú til styrktar Félags áhugafólks um Downs-heilkenni. Þátturinn er í umsjón Loga Bergmanns Eiðssonar og Steingríms Þórðarsonar. Þátturinn hefst klukkan 20:00 og verður sýndur á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×